Morgunblaðið - 11.11.2000, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ
40 LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
VIKU
m
Neyðargetnaðarvörn er ann-
að en fóstureyðingarpilla
Ótti heilbrigðisyfirvalda um að gott aðgengi
að neyðargetnaðarvörn hvetji konur til
kærulausrar kynhegðunar er ástæðulaus,
segir Sóley S. Bender lektor í hjúkrunar-
fræði. Hún segir einnig að afar brýnt sé að
heilbrigðisstarfsfólk taki fordómalaust á
móti stúlkum sem þurfa á neyðargetnaðar-
vörn að halda.
Presslink
Ncyðai’getnaðarvörn er notuð til að koma í veg fyrir þungun.
í RAUN hefur verið mögulegt að
nota neyðargetnaðarvörn til að
koma í veg fyrir óvelkomna þungun
allar götur frá því að getnaðarvarn-
arpillan kom fyrst á markað fyrir um
40 árum. Aukaverkanir af notkun
hennar eru fáar og alla jafna
skammvinnar. Öryggi hennar er aft-
ur á móti mikið. Þrátt fyrir það hefur
aðgengi að henni ekki verið sem
skyldi og hefur hún jafnvel verið
kölluð best geymda leyndarmál okk-
ar tíma um getnaðarvarnir vegna
þess hve lengi hún hefur verið þekkt
en lítið notuð.
„Þessi litla notkun stafar m.a. af
þekkingarskorti, bæði heilbrigðis-
starfsfólks og almennings," segh'
Sóley S. Bender, lektor í hjúkrunar-
fræði og ráðgjafi hjá Fræðslu-
samtökum um kynlíf og barneignir.
Hún segir það mjög brýnt að stúlkur
og pör þekki þetta neyðarúrræði
þannig að þau geti gert raunhæfar
fjölskylduáætlanir.
Strákar sýna mun
meiri ábyrgð nú
Neyðargetnaðarvörn er hormóna-
meðferð sem kona á kost á til að
koma í veg fyrir þungun ef hún hefur
óvarðar samfarir. Hún tekur inn
tvær hormónatöflur innan 72 stunda
eftir að samfarimar áttu sér stað og
aðrar tvær 12 stundum síðar. Því
fyrr sem fyrri skammturinn er tek-
inn, þeim mun betra.
Hér á landi er sérpakkning lyfsins
seld í apótekum undir nafninu Tetra-
gynon. Það er lyfseðilsskylt og þarf
kona því að leita til heimilislæknis
eða kvensjúkdómalæknis til að fá
lyfseðil. Hún getur einnig haft sam-
band við læknavaktina eða vakt-
lækni á kvennadeild Landspítalans.
Þá hafa Fræðslusamtök um kynlíf
og barneignir veitt ráðgjöf á vegum
Hins hússins í miðbæ Reykjavíkur
um nokkurra ára skeið og þar geta
stúlkur einnig fengið lyfíð án tafar. A
síðasta ári fengu 76 stúlkur neyðar-
getnaðarvörn á vegum fræðslusam-
takanna, flestar á aldrinum 14-16
ára.
„Stundum hringir kærasti stúlku
og hefur áhyggjur af að hún gæti
orðið ófrísk. Ef þau hafa verið saman
í einhvern tíma hvetjum við hann til
að koma með henni í ráðgjöf. Strák-
ar eru farnir að sýna mun meiri
ábyrgð en áður og við verðum að
taka þá meira inn í þessa umræðu.
Stundum kemur líka vinkona eða
vinkonur með stúlkunni og það
finnst okkur mjög gott. Þá nær
fræðslan til fleira fólks. Við hvetjum
einnig ungar stúlkur til að ræða um
þetta við foreldra sína. Langflestir
foreldrar vilja fá tækifæri til að
styðja börnin sín í erfiðleikum
þeirra."
Auk þessa hafa lyfjafræðingar í
apótekum heimild til að afgreiða lyf í
neyðartilvikum. Stúlkur og konur
sem ekki tekst að ná í lækni eða ráð-
gjafa fræðslusamtakanna geta því
farið í apótek og fengið aðstoð þar.
Fordómalaus ráðgjöf
Önnur ástæða þess að neyðar-
getnaðarvörn hefur lítið sem ekkert
verið kynnt hérlendis sem og víða
erlendis, er að heilbrigðisyfirvöld
hafa óttast að gott aðgengi að henni
yrði til þess að konur yrðu kærulaus-
ari og að þær myndu nota hana í stað
annarra getnaðarvarna. Sóley segir
að slíkur ótti eigi ekki við nein rök að
styðjast og nefnir hún reynslu Hol-
lendinga því til vitnis.
„Hollendingar fóru að nota neyð-
argetnaðarvörn i kringum 1964,“
segir Sóley. „Þar í landi er mjög lág
tíðni fóstureyðinga meðal ungra
stúlkna."
í Hollandi er einnig mun sjald-
gæfara en hér á landi að stúlkur inn-
an við tvítugt eignist barn eða um 4
stúlkur af hveijum 1000 á móti 22
stúlkum hér. Jafnvægi hefur komist
á notkun hennar og þykir hún síður
en svo vera notuð í óhófi.
Kynlíf er viðkvæmt umræðuefni
og flestar konur skammast sín fyrir
að hafa stundað óvarið kynlíf, að
sögn Sóleyjar. Þeim þykir óþægilegt
að ræða um það við ókunnuga að
getnaðarvarnir hafi brugðist og þær
fá sektarkennd. „Við verðum að
muna að það er engri konu þægileg
reynsla að þurfa að leita sér aðstoðar
vegna ótta um ótímabæra þungun.
Við verðum að taka fordómalaust á
móti fólki með svona erfið erindi.
Það er ekki okkar að setja okkur í
hlutverk dómara enda væri það and-
stætt hugmyndafræði ráðgjafar,
sem gengur út á að veita upplýsing-
ar fordómalaust og á hlutlægan hátt
þ.annig að fólk geti sjálft tekið sjálf-
stæða ákvörðun.“
Ekki það sama og
fóstureyðingarpilla
Sóley segir enn fremur að mikil-
vægt sé að gerður sé skýr greinar-
munur á svokallaðri fóstureyðingar-
pillu og neyðai'getnaðarvörn sem
notuð er innan þriggja sólarhringa.
Fóstureyðingarpillan, eða RU 486
eins og hún er oft kölluð, framkallar
lyfjafræðilega fóstureyðingu og
kemur í stað aðgerðar á sjúkrahúsi.
Henni er ætlað að binda enda á
þungun snemma á meðgöngutíman-
um. RU 486 hefur hlotið opinbera
viðurkenningu í Frakklandi, þar sem
hún var þróuð, Kína, Bretlandi og
Svíþjóð en samkvæmt rannsóknum
hafa konur í nálega 20 löndum víðs-
vegar um heiminn notað lyfið. Þessi
aðferð hefur valdið heitum pólitísk-
um deilum víða um heim. Neyðar-
getnaðarvörn á borð við Tetragynon
er aftur á móti notuð til að koma í
veg fyrir þungun, sem samkvæmt
skilgreiningu hefst ekki fyrr en egg
hefur tekið sér bólfestu í legveggn-
um. Það gerist u.þ.b. 7 dögum eftir
að samfarirnar áttu sér stað. Neyð-
argetnaðarvöm virkar ekki eftir að
eggið hefur náð bólfestu í leginu.
Fóstureyðingar eru nú mun tíðari
meðal ungra stúlkna hér á landi en í
nági-annalöndum okkar. Tíðni þeirra
meðal finnskra kvenna yngri en 20
ára var t.d. 10,2 á hverjar 1000 stúlk-
ur árið 1997 en voru 24,1 á íslandi
árið 1998. Það er trú heilbrigðis-
starfsfólks, m.a. innan Fræðslusam-
taka um kynlíf og barneignir, að með
því að auka þekkingu og aðgengi að
neyðargetnaðarvörnum megi draga
verulega úr ótímabærum þungunum
og fóstureyðingum.
Hátíðnitækni
gegn krabba
Washington. AP.
VICKI Freeman lá grafkyrr inni í
vél sem var eins og rör í laginu á
meðan hátíðnigeislar bárust djúpt
inn í krabbameinssýkt brjóst
hennar. Litlar hitabylgjur gáfu til
kynna að hátíðnigeislarnir væru að
sjóða tóruna úr krabbameinsæxl-
inu - án þess að nokkur merki
sæjust á húð hennar.
Freeman er ein af fyrstu konun-
um sem gangast undir nýstárlega
læknismeðferð sem mun leiða í
ljós hvort þessi „nákvæma hátíðni-
meðferð" geti, er fram líða stund-
ir, komið í staðinn fyrir skurðað-
gerð til þess að nema burtu
krabbamein í brjósti.
Það mun þurfa margra ára
rannsóknir til að komast að því
hvort þessi nýstárlega aðferð, að
sjóða æxlið, virkar. En konur gera
sífellt háværari kröfur um að
brjóstaskurðaðgerðir verði til sem
minnstra lýta og tilraunir sem
gerðar hafa verið við M.D. And-
erson-krabbameinsmiðstöðina í
Houston í Bandaríkjunum og
Brigham & Women’s-sjúkrahúsið í
Boston, eru til marks um aukna
áherslu á rannsóknir er miða að
því að draga úr þörf á skurðað-
gerðum við meðferð á krabba-
meini.
„Ef maður veltir því fyrir sér,
þá eru skurðaðgerðir eins og eitt-
hvað ft'á því á miðöldum," segir dr.
Darrell Smith, geislafræðingur við
Harvard-háskóla, en hann stjórnar
rannsókninni er fram fer á Brigh-
am & Women’s-sjúkrahúsinu. „Við
erum að reyna að gera þetta með
fágaðri hætti. Þetta er á vissan
hátt dálítið eins og í [vísindaskáld-
sögum].“ En þetta vekur alvarleg-
ar spurningar um árangur. Eru
læknar að reyna að fjarlægja æxl-
ið með of einföldum hætti og þá
sérstaklega þegar um er að ræða
sjúkdóm á borð við brjóstakrabba-
mein þar sem skurðaðgerð getur
verið mjög árangursrík? Læknar
vita, að þegar sumar ungar konur
gangast undir brjóstakrabba-
meinsaðgerð er ekki nógu mikið af
vef numið á brott fyrir útlits sakir,
en af þessum völdum er meiri
hætta á að krabbameinið skjóti
aftur upp kollinum en ef meira af
vef hefði verið numið á brott. Auk
þess krefst meðferð, sem ekki er
fólgin í skurðaðgerð, flóknari
tækja og er þar af leiðandi dýrari
en einföld skurðaðgerð.
Sumir geislafræðingar fullyrða
að geislameðferð eigi að geta fjar-
lægt alveg jafn mikið af krabba-
meini og skurðlæknir getur með
hníf sínum. Lítil rannsókn, sem
gerð var við Harvard, bendir til
þess að nákvæm hátíðnitækni geti
soðið í burtu góðkynja æxli í
brjóstum og eykur það vonir um
að árangur náist með þessari nýju
tækni.
Gegn öðrum
krabbameinum
Þótt brjóstakrabbi bjóði upp á
góð tækifæri til rannsókna er end-
anlegt markmið að nýta tæknina
gegn öðrum tegundum krabba-
meins sem eru erfiðari viðfangs,
eins og til dæmis heila-, lifrar- eða
mjúkvefjarkrabbameini þar sem
skurðaðgerðir eru ekki góður kost-
ur. „Það hafa verið gerðar tilraun-
ir á dýrum sem leiða í ljós að þetta
er hægt. Nú þurfum við bara að
sýna fram á að þetta sé góður
kostur,“ sagði dr. Marc Fenster-
macher, við M.D. Anderston-mið-
stöðina, sem stjórnaði meðferðinni
á Freeman.
Gerðar verða tilraunir á 30 kon-
um sem gangast eiga undir skurð-
aðgerð þar sem numin verða á
brott lítil krabbameinsæxli í
brjósti. Sjúklingarnir liggja inni í
sérútbúinni segulómsmyndavél
(MRI). Læknar styðjast síðan við
myndina, sem tækið gefur af æxl-
inu, og miða hátíðnitækinu, sem er
innbyggt í MRI-vélina, til þess að
senda geisla inn í æxlið. 1 MRI-
vélinni lýsist æxlið upp þegar tíu
sekúndna geislaskot hitar það.
Um það bil viku síðar gangast
konurnar, sem taka þátt í tilraun-
inni, undir venjulega skurðaðgerð
þar sem athugað er hvort æxlið sé
í raun og veru dautt og hvort nógu
mikið af vef umhverfis það er laust
við krabbameinsfrumur. Er þetta
mikilvægur öryggisþáttur í fyrstu
tilrauninni. Ef árangurinn reynist
góður munu læknar innan tíðar
leita leyfis bandaríska lyfja- og
matvælaeftirlitsins til að fá að
gera samskonar tilraun án þess að
framkvæma skurðaðgerð.
Hátíðni drepur æxlið ekki með
því að brenna frumur, heldur með
því að breyta prótíninu í þeim, á
sama hátt og ungi hættir að þrosk-
ast þegar egg er soðið. Þetta er
ekki eina aðferðin við krabba-
meinsmeðferð án skurðaðgerðar
sem verið er að rannsaka, en þetta
er sú eina sem ekki krefst þess að
á nokkurn hátt sé farið inn í
líkamann.
Við Háskólann í Kaliforníu í Los
Angeles er verið að leita að sjálf-
boðaliðum til að taka þátt í tilraun
með að frysta brjóstakrabba-
meinsæxli, en það á að gera með
því að stinga nál inn í æxlið. Er
ætlunin að æxlið verði fryst og lát-
ið þiðna til skiptis þangað til
himna krabbameinsfrumnanna
springur. Aðrir vísindamenn eru
að gera tilraunir með að nota út-
varpsbylgjur til að brenna æxli í
lifur eða brjósti, og einnig standa
yfir tilraunir með að sprauta lyfj-
um sem gera tiltekin æxli næm
fyrir ljósgeislum sem eiga á drepa
þau.
Grundvallarspurningin er sú
hvaða aðferð reynist best við að
drepa krabbameinsæxli, leiði til
minnstra lýta og sé fjárhagslega
hagkvæmust, að sögn dr. Helenu
Chang, sem stjórnar tilrauninni
með frystinguna. Læknar taka
fram, að jafnvel þótt einhver að-
ferðanna reynist nothæf dugi það
einungis til að fjarlægja æxlið, en
muni ekki koma í staðinn fyrir
lyfja- og geislameðferð sem marg-
ir sjúklingar þurfa á að halda eftir
að æxli hefur verið fjarlægt.
TENGLAR
Brigham & Women’s- sjúkrahúsiö:
www.partners.org/bwh/home.html.
Associated Press
Útlit er fyrir að nýir möguleikar skapist á næstu árum á sviði krabba-
meinslækninga þar sem hátiðnibúnaði er beitt. Myndin sýnir tæki sem
notað er við greiningu á bijóstakrabba.