Morgunblaðið - 18.11.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2000 27
ERLENT
Söguleg heimsókn Bandaríkjaforseta til Víetnam
Clinton hvetur
til aukins frelsis
Hanoi. AFP, AP.
BILL Clinton Bandarílgaforseti
hvatti stjórnvöld í Víetnam í gær til
þess að opna samfélagið og hagkerfi
landsins enn frekar, svo hin „sárs-
aukafulla fortíð“ mætti víkja fyrir
„framtíð hagsældar og friðar." A
öðrum degi sögulegrar heimsóknar
hans til Víetnam lagði Clinton
áherslu á mikilvægi þess að aðgengi
að nýrri tækni og upplýsingum væri
óhindrað í heimi sem drifinn væri
áfram af þekkingu.
Clinton er fyrsti forseti Banda-
ríkjanna sem heimsækir landið síðan
Víetnam-stríðinu lauk árið 1975 en
samskipti ríkjanna hafa aukist veru-
lega í forsetatíð hans. Clinton beitti
sér fyrir afnámi viðskiptabanns á
HVíetnam árið 1994 og ári síðar tóku
ríkin upp stjórnmálatengsl að nýju.
I ræðu sem Clinton flutti í háskól-
anum í höfuðborginni Hanoi í gær
minntist hann „átakanna sem við
[Bandaríkjamenn] köllum Víetnam-
stríðið en þið [Víetnamar] kallið Am-
eríku-stríðið.“ Forsetinn sagði völd-
um hópi námsmanna við háskólann
að nú væri tímabært að hinir fyiT-
verandi fjendur „minntust sögunnar,
en án þess að endurtaka hana, og
gæfu ungu fólki eins og ykkur í báð-
um ríkjunum tækifæri til að lifa í
núinu en ekki í fortíðinni." Clinton
hafði lýst því yfir fyrir heimsóknina
að hann hygðist ekki biðjast form-
lega afsökunar á Víetnam-stríðinu
en hann viðurkenndi að Víetnamar
hefðu orðið fyrir mikilli blóðtöku. A
að giska þrjár milljónir Víetnama og
um 58 þúsund bandarískir hermenn
féllu í stíðinu. „Við getum ekki breytt
fortíðinni en við getum haft áhrif á
framtíðina," sagði Clinton sem var
sjálfur andvígur stríðinu og kom sér
undan því að gegna herskyldu árið
1969.
Réttindi þegnanna ógna
ekki stöðugleika
Mannréttindahreyfingar höfðu
þrýst á Clinton fyrir förina að taka
ástand mannréttindamála í Víetnam
upp við leiðtoga landsins, sem hann
og gerði, bæði á fundum með emb-
ættismönnum og í ávörpum. „Okkar
reynsla er sú að trúfrelsi og ótvíræð-
ur réttur þegnanna til að mótmæla
stefnu stjórnvalda ógni ekki stöðug-
leika í samfélaginu," sagði Clinton.
„Þvert á móti eykur það traust þjóð-
arinnar á að stofnanir samfélagsins
séu réttlátar."
AP-fréttastofan hafði eftir einum
af ráðgjöfum forsetans að yfirvöld í
Hanoi hefðu tekið dræmt í þessa
málaleitan Clintons og hefðu vísað til
þess að Víetnamar hefðu annan
skilning á mannréttindum en Vest-
urlandabúar. Jake Siewert, talsmað-
ur Hvíta hússins, sagði þó að sátt-
máli um bann við vinnuþrælkun
barna væri á meðal samninga sem
bandaríski sendihen’ann, Pete Pet-
erson, og víetnamskir embættis-
menn undirrituðu í gær. Þess má
geta að Peterson barðist í Víetnam
og er fyrrverandi stríðsfangi.
Fulltrúar þjóðanna undirrituðu
einnig samninga um samstarf á sviði
vísinda og tækni, þar á meða! varð-
andi leiðir til að hefta útbreiðslu al-
næmis og annarra sjúkdóma.
Of hægar umbætur
Stjórnvöld í Víetnam komu á
markaðsumbótum á níunda áratugn-
um og var þá samyrkjubúskapur
meðal annars aflagður.
Clinton fagnaði þeim skrefum sem
þegar hefðu verið stigin til að opna
hagkerfi landsins en gagnrýndi
kommúnistastjórnina þó fyrir að
hafa hægt á umbótum á undanföm-
um árum. Hann brýndi fyrir náms-
mönnunum við Hanoi-háskóla að þau
ríki sem héldu uppi einangrunar-
stefnu yrðu undir í samkeppninni.
„Þjóðir sem hafa opnað hagkerfi sín
fyrir alþjóðaviðskiptum hafa upplif-
að tvöfalt meii-i hagvöxt en þau ríki
sem enn búa við lokað hagkerfi."
En forsetinn lagði þó áherslu á að
Bandaríkin hefðu ekki í hyggju að
neyða fullvalda ríki til að breyta
stefnu sinni. „Við reynum ekki að
þröngva þessum hugsjónum okkar
upp á aðra og við ættum ekki að gera
það,“ sagði Clinton.
AP
Bil! Clinton Bandaríkjaforseti og Tran Duc Luong, forseti Víetnam,
ræða saman undir brjóstmynd af byltingarleiðtoganum Ho Chi Minh í
Hanoi í gær. Clinton hvatti til hraðari umbóta í Víetnam.
©
Leitaðu svara
á persona.is
Hver er greindarvísitala þín?
Ertu sffellt með áhyggjur?
Viltu leggja orfl i belg?
Ertu tilbúin(n) í samband?
Hvernig persónuleiki ertu?
Ertu spilafíkill?
Viltu vha meira um einelti?
Ertu kynlífsfíkill?
Áttu vifl áfengisvandamál afl strífla?
Ertu þunglynd(ur)?
Eru vandamál á vinnustaflnum?
Kvíflirðu því að eldast?
Ertu hæfur uppalandi?
Eftirtalin fyrirtæki óska aðstandendum
persona.is til hamingju með áfangann:
LEITA
KYNLÍF
www.persona.is
Stærsti geðheilbrigðisvefur á íslandi
SPJALL
ÞUNGLYNDI PÓSTLISTI INNSKRÁNING RÁÐGJÖF
SAMSKIPTI ÖNNUR VANDKVÆÐI VINNA
ÁTRÖSKUN
ÞROSKI
ALDRAÐIR KVÍÐI/FÆLNI
MEÐFERÐ HEGÐUNARVANDI SENDA SÍÐU
UPPELDI
SKRÁÐU ÞIG ORÐABÓK SÉRFRÆÐINGURINN
LYFiA Edda
Lyt * láamaitUVMðl mUMun 0 otQAfa OmegaFarma
,/OEi-nk Séc£0y
SB
SmithKhne Beecham
Pharmaceuticals
GlaxoWellcome