Morgunblaðið - 09.12.2000, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 09.12.2000, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Könnun meðal jyrunnskólanemenda á félagslegum aðstæðum ungra innflylnenda Þeim fjölgar sem telja nýbúa of marga Úr könnun meðal nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla Spurningar: Á höfuð- borgar- svæðinu öðru þéttbýli dreifbýli Á sveitabæ Erlendis Hvar vildir þú helst búa? 6,1 17,4 Hvar telur þú að auðveldast verði e fyrir þig að fá vinnu við hæfi?1 17,4% - |4,4|ai Hversu sammála eða ósammála ertu eftir- farandi fullyrðingum? Mjög sammála Frekar sammála Hlutlaus Frekar ósammála Mjög ósammála Ég tel að of margir nýbúar i séu búsettir hér á landi.1 12,7% | 40,2% Ég tel að sú menning sem fylgir nýbúum KMIttl hafi haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. ’ 47,0% ina Ég tel að nýbúar eigi að hafa i sömu réttindi og aðrir íslendingar.1 20,7% 28,4% Höfuðborgarsvædið UNGLINGUM, sem eiga erlendar tungur að móður- máli, er hættara en öðrum unglingum hér á landi gagn- vart félagslegri einangrun og sálrænni og tilfinninga- legri vanlíðan. Þeim erlendu ungmennum sem alist hafa upp hérlendis er hættara að þessu leyti en þeim sem flust hafa til landsins frá út- löndum. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var meðal allra nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla á land- inu. Hún leiddi einnig í ljós að 32,2% svarenda eru mjög sammála eða frekar sam- mála því að of margir nýbúar búi hér á landi og hefur fjölgað nokkuð í þeim hópi frá því sams konar könnun var gerð 1997. Könnunin var gerð af Antoinette Naysaa Gyedu- Adomako, Ingu Dóru Sig- fúsdóttur og Bryndísi Björk Asgeirsdóttr hjá fyrirtæk- inu Rannsóknum og gi-ein- ingu ehf og lögð fyrir alla nemendur sem sátu kennslustundir í 9. og 10. bekk4. apríl sl. Niður- stöðurnar hafa nýlega verið kynntar borgaryfirvöldum og frá þeim hefur Morgun- blaðið fengið í hendur skýrslu þar sem gerð er grein fyrir niðurstöðunum. Alls fengust 6.250 svör og áttu 434 svarendanna er- lendar tungur að móður- máli. Ur þeim hópi höfðu 324, eða 76%, alist upp hér á landi en 24%, 101 nemandi, hafði alist upp erlendis. Til umhugsunar um stuðning við unga innflytjendur I umfjöllun um niður- stöðurnar kemur fram að vert sé að hafa í huga að hærra hlutfall þeirra sem eiga erlent móðurmál og eru aldir upp á Islandi hafi nei- kvæða mynd af tilfinninga- legri líðan sinni sem gefi til kynna að umtalsvert hærra hlutfall aðfluttra unglinga búi við félagslega einangrun eða við aðstæður sem stuðla ekki að tilfinningalegri og sálrænni vellíðan. Með það í huga að fólk í þessum hópi noti að eigin sögn fíkniefni í meira mæli en aðrir unglingar, eins og fram kemur hér á eftir, og finni fremur til depurðar og einmanakenndar komi þetta ekki á óvart. Sá mikli munur sem sé milli íslenska hóps- ins annars vegar og hins er- lenda hins vegar ætti að vekja til umhugsunar og vekja spurningar um þann stuðning sem ungir innflytj- endur njóti í íslenskum skól- um til aðlögunar að samfé- laginu. „Menning er grundvöllur hugsunar, skynjunar, að- gerða og allra annarra til- finningalegra og hugrænna aðgerða og er þannig grunn- ur þess mats sem einstakl- ingur leggur á heiminn," segir enn fremur. „Samfé- lag, sem telur sín menning- arlegu norm eðlileg og öðr- um æðri og sem telur aðrar venjur einkennilegar, skrýtnar, óæðri eða jafnvel siðlausar, þjáist af menning- arlegri sjálflægni eða þjóð- hverfu sem getur af sér kynþáttafordóma og útlend- ingafordóma," segir enn fremur. „Þeir sem þjást af útlendingafordómum telja sína eigin menningu æðri annarri í kynþáttalegu, sið- rænu og menningarlegu til- liti og vantreysta eða óttast þá sem skilgreindir eru sem aðkomumenn. Vaxandi hópur ungs fólks af mismunandi menningar- legum bakgrunni á nú Is- land að heimkynnum. Greinilegt er að fyrir ungl- inga með erlent móðurmál felur aðlögun að öðru samfé- lagi í sér annað og meira en að læra tungumál og temja sér menningarlegar venjur; þar er um að ræða áhrif frá sögulegum, félagslegum og efnahagslegum aðstæðum í þjóðfélagi. Einnig skiptir höfuðmáli að hve miklu leyti menningarleg fjölbreytni er til staðar í því þjóðfélagi sem lagast þarf að. Fjöl- menningarleg samfélög eru líklegri en einmenningarleg samfélög til að búa yfir tveimur þáttum sem þar skipta máli, þ.e. að til sé kerfi félagslegra og menn- ingarlegra hópa sem geta séð þeim fyrir stuðningi, sem þurfa að aðlagast menningunni, og einnig er þar líklega að finna meiri þolinmæði gagnvart því að umbera menningarlega fjöl- breytni." Fleiri telja útlendinga of marga nú en 1997 Þá segir að eftir því sem útlendingum sem búa á ís- landi fjölgar sé mikilvægt að meta viðhorf almennings gagnvart þeim sem hér setj- ast að. Niðurstöðurnar, sem birtar eru í töflunni hér til hliðar, varðandi afstöðu til búsetu „nýbúa“ á íslandi, voru bornar saman við sam- bærilega könnun frá 1997 og kemur þá í ljós að frá 1997 hefur þeim fjölgað úr 15% í 22% sem hafna því að sú menning sem fylgir nýbúum hafi haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Jafnframt fækkar úr 53% í 47% í þeim hópi sem er hvorki sammála né ósam- mála staðhæfingunni en hlutfall þeirra sem samsinna því að áhrif menningar sem fylgir nýbúum hafi verið já- kvæð lækkar úr 32% í 31%. Enn fremur fjölgar úr 12% í 16% í þeim hópi sem er andvígur því að útlend- ingar á íslandi hafi sömu réttindi og íslendingar. Þeim, sem vilja sömu rétt- indi, fækkar úr 59% í 56%. Þá eru 32,2% frekar eða mjög sammála því að of margir útlendingar búi á Islandi og hefur fjölgað í þeim hópi úr 24%. 1997 voru 47% hvorki sammála né ósammála þeirri staðhæf- ingu en nú eru 40% þeirrar skoðunar. Þeir sem eru ósammála því að útlending- ar séu of margir eru nú 28% en voru 29% árið 1997. í umfjöllun um þessar niðurstöður segir í skýrsl- unni að fleiri taki nú afstöðu en áður og fleiri telji út- lendinga of marga og séu andvígir því að þeir hafi sömu réttindi. Fyrir þessu gætu t.d. verið þær ástæður að minnihlutahópum hafi fjölgað og þeir orðið sýni- legri. Slíkt geti haft áhrif á viðhorf þátttakenda sem eiga því að venjast að búa í þjóðfélagi þar sem ein menning er ráðandi. „Þessar tölur benda til þess að brýn þörf sé á því að skólar taki í notkun fjölmenningarlegar kennsluaðferðir," segir enn fremur en þannig mætti upplýsa nemendur um ann- ars konar menningu og gera þá móttækilegri fyrir fólki frá mismunandi menningar- heimum. Einnig fengju kennarar og ráðgjafar í ís- lenskum menntastofnunum um leið einstakt tækifæri til að undirbúa nýja kynslóð undir aðlögun að ólíkum menningarheimum og stuðla að fjölmenningarlegum við- horfum í landinu. „Með hverju árinu sem Úr könnun meðal nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla á íslandi fslenska móðurmál Erlent móðurmál, uppallnn á Íslandi I Erlent móðurmál, [ uppalinn erlendis Hlutfall þeirra sem segja erfitt að fá hlýju og samúð frá vinum: Hlutfall þeirra sem segjast oft vera leiðir eða daprir: JSL 27% Hlutfall þeirra sem segjast oft vera einmana: Hlutfall þeirra sem segja auðvelt að fá ráð hjá vinum um það sem að námi snýr: Hlutfall þeirra sem segja sálræna líðan sína slæma: Hlutfall þeirra sem segja frammistöðu sína í námi, góða, miðlungs eða siæma samanborið við jafningjahópinn: Góða Miðlungs Slæma 47% Hlutfall þeirra sem segja að staðhæfingin „Mér semur ekki vel við kennarana” eigi við um þá: Alltaf Hlutfall þeirra sem segja að staðhæfingin „Mér líður illa í skólanum” eigi við um þá: líður verður menningarlegur bakgrunnur íbúa landsins fjölbreytilegri og það er mjög mikilvægt að þessara breytinga á sjái stað í upp- byggingu þjóðfélagsins, einkum hvað varðar ung- menni sem eru á því ævi- skeiði afar viðkvæm fyrir neikvæðum áhrifum," segir enn fremur. Meiri neysla vímuefna Enn fremur var notkun vímuefna könnuð og kom fram að 20% íslenskra ungl- inga í 9. og 10. bekk höfðu reykt a.m.k. eina sígarettu síðastliðinn mánuð. í hópi þeirra sem höfðu alist upp hérlendis en áttu erlent móðurmál var hlutfallið 26,9% en 24,8% hjá þeim sem höfðu alist upp erlend- is. Sá hópur var hins vegar fámennastur þeirra sem höfðu orðið drukknir einu sinni eða oftar undanfarna 30 daga en 16,6% svöruðu játandi. 24,5% íslenskra ungmenna svöruðu því ját- andi en 29,7% úr hópnum sem hér hafði alist upp en talaði erlent móðurmál. Sá hópur hafði einnig mesta reynslu af kannabisneyslu en 13,7% höfðu prófað slík efni einu sinni eða oftar. 11,9% höfðu þá reynslu úr hópi þeirra sem alist höfðu upp erlendis en 8,4% þeirra sem áttu íslensku að móður- máli. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks mótmælir ummælum formanns hafnarstjórnar um slippasvæðið Segir að sjálfstæðismenn hafi átt hugmyndina Reykjavíkurhöfn GUÐLAUGUR Þór Þórðar- son, borgarfulltrúi sjálfstæð- isflokksins sem sæti á í hafn- arstjórn, segir að sjálfstæðis- menn í hafnarstjóm hafi átt frumkvæði að þeirri hugmynd að endurskipuleggja slippa- svæðið. „Það er alveg furðurlegt að Arni Þór skuli vera að svekkja sig yfir því að sjálfstæðis- menn skuli kannast við að hafa frumkvæði að málinu þar sem við komum fram með þessa tillögu," sagði Guðlaug- ur Þór. „Það er í góðu lagi að vera öfundsjúkur út i frum- kvæði okkar en algjör óþarfi að afhjúpa það með þessum hætti.“ í Morgunblaðinu í gær undrast Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Reykjavíkur- listans og formaður hafnar- stjómar, það að sjálfstæðis- menn vilji eigna sér hugmyndina þar sem þeir hafi ekki stutt kaup borgarinnar á lóð og húseignum Stáltaks hf. við Mýrargötu, sem hafí verið forsenda endurskipulagning- ar svæðisins. Þá segir hann að tillaga sjálfstæðismanna um endurskipulagningu svæðis- ins, sem lögð hefði verið fram í hafnarstjórn 14. júní, hefði verið ótímabær, þar sem þá hefði legið fyrir samningur við Stáltak um rekstur drátt- arbrauta á svæðinu næstu 16 árin. Vildu kanna réttarstöðu hafnarinnar Guðlaugur Þór mótmælir þessu og segir að tillagan hefði verið tímabær, þar sem á umræddum fundi hefði verið lagt fram bréf Stáltaks þar sem komið hefði fram að þeir vildu hætta rekstri dráttar- brauta á svæðinu. Hann sagði að vegna þessa hefðu sjálfstæðismenn í hafnarstjórn lagt fram til- lögu um að hefja undir- búning að hugmyndasam- keppni um framtíðarnýtingu á svæðinu norðan Mýrar- götu. Guðlaugur Þór sagði að sjálfstæðismenn hefðu hins vegar ekki stutt kaup borgar- innar á fasteignum Stáltaks, þar sem þeim hefði fundist verðið of hátt. Þá sagði hann að þeir hefðu viljað að borgarlögmaður kannað réttarstöðu hafnar- innar í málinu, þar sem borgin hefði í raun verið búin að kaupa lóðirnar mörgum árum áður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.