Morgunblaðið - 09.12.2000, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Undir-
skrifta-
söfnun
gegn ESB
TVÖFALT fleiri Austurríkis-
menn hafa skrifað undir
áskorun um að haldin verði
þjóðaratkvæðagreiðsla um
úrsögn Austurríkis úr
Evrópusambandinu en nauð-
synlegt var til að fá málið
tekið upp á þingi. 194 þúsund
manns skrifuðu undir áskor-
unina, eða 3,3% landsmanna.
Forsvarsmenn undirskrifta-
söfnunarinnar fullyrða að lof-
orð, sem gefín voru fyrir inn-
gönguna, hafi ekki verið efnd,
og nefna sérstaklega að
stjórnvöld hafi heitið því að
halda austurríska gjaldmiðl-
inum, shillingnum.
Margir Austurríkismenn
snerust gegn ESB fyrr á
þessu ári, þegar hin aðildar-
löndin slitu stjórnmálatengsl-
um við Austurríki eftir valda-
töku ríkisstjórnar, sem
Frelsisflokkur Jörgs Haiders
á aðild að.
Norskir
ökumenn
allsgáðir
AÐEINS fimm ökumenn af
37.500 reyndust undir áhrif-
um áfengis, þegar norska lög-
reglan hóf mikið eftirlitsátak
á miðvikudag til að vekja at-
hygli á hertum reglum um
ölvunarakstur, sem taka gildi
um áramótin. t>á verður leyfi-
legt magn áfengis í blóði
lækkað úr 0,5 prómillum, sem
samsvarar einni bjórfiösku, í
0,2 prómill. Nýju reglurnar
verða meðal þeirra ströng-
ustu í heimi.
Ný lög um þjdðsöng, fána og skjaidarmerki Rússlands samþykkt
Rússar taka upp þjóð-
söng frá stalmstímanum
Moskvu. Reuters, AFP.
NEÐRI deild rússneska þingsins,
Ríkisdúman, samþykkti með yfir-
gnæfandi meirihluta í gær, að þjóð-
söngur Sovétríkjanna frá stalíns-
tímanum skyldi lögfestur sem
þjóðsöngur Rússlands, þjóðfáninn
skyldi vera hinn þríliti fáni keisara-
tímans og skjaldarmerkið sama tví-
höfða arnarmerkið og notað var á
valdatima Romanov-keisaraættar-
innar.
Frumvarpið var keyrt í gegn um
þingið á þremur tímum, að beiðni
Vladimírs Pútíns forseta. Umdeild-
asta tillagan, um þjóðsönginn, hlaut
381 atkvæði en 51 þingmaður var
henni mótfallinn. Þeir þingmenn
sem greiddu atkvæði á móti tilheyra
flestir þingflokki frjálslyndra, en
þeir hvöttu til þess að baki yrði snúið
við ógnum stalínstímans og að
Rússlandi yrði valinn nýr þjóðsöng-
ur.
Yfir 340 af 450 þingmönnum dúm-
unnar samþykktu að rauð-hvít-blái
fáninn yrði lögfestur sem þjóðfáni og
tvíhöfða öminn sem skjaldarmerki.
Með samþykkt frumvarpsins er í
fyrsta sinn búið að lögfesta þjóð-
söng, fána og skjaldarmerki rúss-
neska sambandsríkisins frá því
Sovétríkin voru leyst upp fyrir níu
árum.
Hinn stórkarlalegi þjóðsöngur,
sem Stalín lét gera að þjóðsöng
Sovétríkjanna árið 1943 - þegar her-
sveitir Hitlers réðu yfir stórum hluta
Rússlands - kemur nú í stað 19,-ald-
ar lags, sem Rússar hafa notazt við
undanfarin ár samkvæmt tilskipun
Borís Jeltsíns, fyrrverandi forseta.
Nýjan texta vantaði þó við þennan
bráðabirgðaþjóðsöng. Nú stendur til
að semja nýjan texta við stalínstíma-
þjóðsönginn. Ein tillagan er sú, að fá
Sergei Mikhaílkov, höfund uppruna-
lega textans, til að semja nýjan.
Hann uppfærði gamla textann tvisv-
ar, síðast árið 1977.
Þingmenn hins frjálsynda Yabl-
oko-flokks sögðust í gær myndu
Reuters
Rússneskur þingmaður virðir fyrir sér nýtt skjaldarmerki Rússlands, sama tvíhöfða amarmerkið og notað var
á valdatíma Romanov-keisaraættarinnar.
kæra lögleiðingu stalínstímaþjóð-
söngsins til stjómarskrárdómstóls
Rússlands. Hún væri óvirðing við
þann fjölda milljóna manna, sem al-
ræðisstjórn Stalíns hefði á samvizk-
unni.
Pútín forseti tók af skarið í þjóð-
söngsdeilunni í sjónvarpsávarpi í
vikunni, þar sem hann sagði að af-
farasælast væri að þjóðin sameinað-
ist um þau þjóðartákn sem „stæðu
fyrir það bezta í sögu hennar“.
Vekur reiði í
Eystrasaltslöndunum
Reuters
Nýr þjdðfáni Rússlands (til vinstri), fáni landhersins og fáni sjóhersins.
Fyrsta Samsonite verslunin
á Islandi hefur opnað í
Skeifunni 7 undir sama þaki
og Metró.
Bjóðum allar gerðir af
Samsonite töskum, harðar og
mjúkar, stuttar og langar,
stórar og smáar.
OLLKVOLD
TÖSKU * OG SKÖVIÐGEROIR
Skelfan 7 • Sfml 525 0800
í Eystrasaltslöndunum, sem vom
innlimuð í Sovétríkin á stríðsáranum
og endurheimtu sjálfstæði sitt við
fall þeirra, vora viðbrögðin við þess-
um fréttum frá Rússlandi hörð í gær. fyrrverandi forseti og sjálfstæðis-
„Þetta mun vekja upp gamalt hetja Litháens. „Það er mjög ergi-
skrímsli, sem engin þörf var á að að Rússar skyldu hafa gert
gera,“ sagði Vytautas Landsbergis, þetta."
Skýrt frá sölu kommúnista á dýrgripum Rússa
Seldu rússneskar
gersemar fyrir slikk
Moskvu. The Daily Telegraph.
SKYRT er frá sölu Lenins, Trotskís
og Stalíns á listaverkum Rússa í
bókinni „Sala rússnesku dýrgrip-
anna“ sem út kom í vikunni sem leið.
Þar er lýst af mikilli nákvæmni
hvemig þessir leiðtogar bolsévika
seldu ýmsar gersemar í því skyni að
bæta í ríkiskassann. Það reyndist þó
vera lítið sem þeir græddu á sölunni
því eftirspum eftir umræddum Iista-
verkum og forngripum var lítil á
þriðja og Qórða áratugnum.
Salan fáránleg
að mati ritstjórans
Kommúnistar fóm fyrst ráns-
hendi um kirkjur landsins, þá seldu
þeir dýrgripi keisarafjölskyldunnar.
Að lokum tóku þeir til við málverk
Hermitage-safnsins í Sankti Péturs-
borg, sem þá bar nafnið Leníngrad,
og vom málverk eftir Rembrandt,
Botticelli, Van Gogh og Degas með-
al þeirra sem vom seld úr landi.
Heimsins elsta útgáfa af Nýja testa-
mentinu, innanstokksmunir úr höll-
um, íkonar og snilldarverk impressj-
ónistanna vom einnig á meðal þess
sem bolsévikar losuðu sig við á
þriðja og fjórða áratugnum.
Nicolas Iljine, einn ritstjóra
verksins, segir sölu dýrgripanna
hafa verið fáránlega. „Þeir seldu
alla þessa gripi til að kaupa dráttar-
vélar en þegar allt kom til alls skiptu
þeir engum sköpum fyrir fjárhag
ríkisins."
Menntamálaráðherra Rússa,
Mikhail Shvydkoi, nýtti sér umfjöll-
unina um bókina til að ráðast á
kommúnista samtímans og saka þá
um hræsni. Hann sagði bókina eyði-
lcggja þá goðsögn að þeir stæðu
vörð um arfleifð þjóðarinnar.
Áður hefur verið sagt frá sölu
listaverkanna f einstaka fræðiritum
en bókin cr sú fyrsta sem segir frá
öllu umfangi sölunnar.
Leiðtogar kommúnista réttlætu á
sínum tíma sölu kirkjulegra muna
með því að prestamir ættu að koma
til hjálpar í hungursneyðinni sem _
hijáði Rússland eftir byltinguna. í
einrúmi krafðist Lenúi þess hins
vegar að hungursneyðin yrði nýtt út
í ystu æsar til að ganga frá óvinin-
um, kirkjunni og valdi hennar yfir
fólki.
Trotskí lá á að selja muni áður
en bylting brytist út í V-Evrópu
Asinn var mikill við að selja
kirkjumuni úr landi, m.a. var
Trotskí mjög í mun að sala þeirra
hæfist sem fyrst vegna þess að hann
bjóst við því að þeir féllu mjög í
verði þegar bylting brytist út um
gjörvalla Vestur-Evrópu.
Einn skautlegasti kaflinn í sögu
sölunnar er um sölu listaverka úr
Hermitage-safninu. Meðal öfiugra
kaupenda var fjármálaráðherra
Bandarílq'anna, Andrew Mellon,
sem þrátt fyrir að vera mótfallinn
viðskiptum við Sovétríkin á opinber-
um vettvangi sá því ekkert til fyrir-
stöðu að kaupa 25 meistaraverk af
safninu.
Þetta kom í Ijós nokkmm ámm
síðar, árið 1934, er hann var sakað-
ur um skattvik. Flest málverkanna
sem hann festi kaup á enduðu að
lokum á Listasafninu f Washington-
borg.