Morgunblaðið - 09.12.2000, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fengu
styrki
Snorra
Sturlusonar
ANTHONY Faulkes, háskóla-
kennari í Birmingham á Bret-
landi, og Margaret Connack,
háskólakennari í Charleston,
Suður-Karólínu, Bandaríkjun-
um, hafa hlotið Styrki Snorra
Sturlusonar fyrir 2001.
Faulkes hlýtur styrkinn til
að vinna að fomíslenskri lestr-
arbók handa enskum stúdent-
um og Cormack tO að vinna að
rannsókn á kaþólskum dýrling-
um hér á landi og kirkjum helg-
uðum þeim.
Styrkir Snorra Sturlusonar
fyrir árið 2001 voru auglýstir í
júlí sl. með umsóknarfresti til 1.
nóvember. Sjötíu og fjórar um-
sóknir bárust frá tuttugu og
sex löndum.
í úthlutunarnefnd styrkj-
anna eiga sæti Úlfar Bragason,
forstöðumaður Stofnunar Sig-
urðar Nordals, Rristján Arna-
son dósent og Ingibjörg Hara-
ldsdóttir rithöfundur
Einleikur
í Norræna
húsinu
DANSKI leikarinn Niels Vigild
fer með hlutverk Markúsar í
einleikssýningu sem verður í
fundarsal
Norræna
hússins á
morgun,
sunnudag, kl.
16.
Hér er um
að ræða
leiksýningu
sem Café-
Teatret í
Kaupmanna-
höfn setti upp í samvinnu við
danska biblíufélagið. Leikstjóri
sýningarinnar er Ulla Gottlieb
og gerði hún einnig leikgerðina
ásamt Niels Vigild. Textinn er
fluttur óbreyttur úr Markúsar-
guðspjallinu sem talið er elst
guðspjallanna.
Niels Vigild þykir fara á
kostum í hlutverki Markúsar,
og hefur flutningur hans hlotið
mikið lof gagnrýnenda í Dan-
mörku.
Sýningin tekur rúmlega tvær
klukkustundir.
Aðgangur er 1.000 krónur.
Sýningu
lýkur
SÝNINGUNNI Móðirin í ís-
lenskum ljósmyndum í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur, Gróf-
arsal, Tryggvagötu 15, lýkur
nk. sunnudag, 10. desember.
Opið er 10 til 16 virka daga
en 13 til 17 um helgar.
Skólavörðustíg 21 • sími 551 4050 «Reykjavík
Verk Péturs Tryggva, sem stolið var af sýningu í Danska
lis tiðnaðarsafninu í fyrrinótt.
Verki eftir Pétur
Tryggva stolið á sýn-
ingu í Kaupmannahöfn
Opera byggð
á Z-ástarsögu
ME NNINGARDAGSKRÁ á vegum
Miðstöðvar símenntunar á Suður-
nesjum verður haldin í Bókasafni
Reykjanesbæjar í Kjarna, Hafnar-
götu 57, í Keflavík í dag, laugardag,
kl. 15.
Vigdís Grímsdótth- rithöfundur les
úr bók sinni „Þögninni“. Þá mun As-
gerður Júníusdóttir söngkona frum-
flytja tvo stutta hluta úr nýrri óperu
eftir Sigurð Sævarsson, „Zeta-ástar-
saga“, sem byggð er á samnefndu
skáldverki Vigdísar Grímsdóttur.
Sigurður lauk mastersnámi í söng
og tónsmíðum frá Boston University
árið 1997 og starfar nú sem skóla-
stjóri Tónlistarskólans í Garði auk
þess að kenna við Tónlistarskólann í
Reykjanesbæ og í Reykjavík. Krist-
rún Guðmundsdóttir les úr nýrri
ljóðabók sinni „Fingurkoss“ en
handritið að bókinni fékk viðurkenn-
ingu frá dómnefnd Bókmenntaverð-
launa Tómasar Guðmundssonar í ár.
Gyrðir Elíasson rithöfundur les úr
„Gula húsinu“ en fyrir það verk hlaut
hann bókmenntaverðlaun Halldórs
Laxness í ár. Dagskránni lýkur með
því að Rúnar Júlíusson syngur lög af
nýjum geisladiski sínum, „Reykja-
nesbrautinni".
Aðgangur er ókeypis.
BROTIST var inn á Danska listiðn-
aðarsafnið í Kaupmannahöfti í
fyrrinótt og stolið verðmætum grip-
um á sýningu sem þar var sett upp í
tengslum við silfursmíðasamkeppni
sem Gullsmiðagildi Kaupmanna-
hafnar efndi til nýverið.Verk að
verðmæti 250 þúsund danskar
krónur, eða sem samsvarar um
tveimur og hálfri milljón íslenskra
króna, eftir íslenska gull- og silfur-
smiðinn Pétur Tryggva, sem býr og
starfar í Kaupmannahöfn, var á
meðal þeirra sem þjófarnir höfðu á
brott með sér. Um er að ræða stórt
fat úr sterlingsilfri með lítilli skál
úr 18 karata gulli ofan á, verk sem
Pétur vann á opinni verkstæðissýn-
ingu danskra silfursmiða á Lista-
safninu í Herning á sfðastliðnum
vetri og seldi einkaaðila f Herning á
250 þúsund danskar krónur. Einnig
var stolið skartgripum eftir gull-
smiðinn Arje Griegst en hann hlaut
fyrstu verðlaun í silfursmiðasam-
keppninni á dögunum og Pétur önn-
ur verðlaun.
Eitthvað alvarlegt
að öryggiskerfinu
Pétur kvaðst í samtali við Morg-
unblaðið í gær vera sleginn yfir
þessum tíðindum og greinilegt væri
að eitthvað alvarlegt væri að örygg-
iskerfi safnsins. „En nú sest maður
bara niður og smíðar nýtt,“ sagði
hann. Lögregla vinnur að rannsókn
málsins og hefur verið lýst eftir
gripunum en Pétur segist óttast að
gullið og silfrið verði brætt.
Lj ósmynd/V íkurfréttir
Sigurður Sævarsson, höfundur óperunnar.
Reuters
Tekið á tunglinu
GESTUR á Nýlistasafninu í Sydney tekur á tunglinu, þegar ljósmyndir bandarískra geimfara voru þar til sýnis.
y*Wl-2000
Laugardagur 9. desember
Rafbækurnar
40% undir al-
mennu listaverði
VERÐ bókanna þriggja af jólamark-
aðnum, sem Edda-miðlun býður nú í
rafrænu formi á Netinu er að sögn
fyrirtækisins 40% lægra en almennt
listaverð. Bækumar eru; Gula húsið
eftir Gyrði Eh'asson, Krossgötur eftir
Kristínu Steinsdóttur og Fluguveiði-
sögur eftir Stefán Jón Hafstein.
Hið rafræna form þessara bóka
miðast við þann hugbúnað sem flestir
Islendingar nota eða hafa aðgang að
til að lesa skjöl í tölvu: Acrobat
Reader. Hægt er að kynna sér hluta
hverrar bókar á Netinu áður en kaup
eru staðfest með því að gefið er upp
greiðslukortanúmer. Eftir að kaup
hafa verið staðfest berst bókin í
tölvupósti, sem viðhengi sem hægt er
að opna í Acrobat Reader-hugbúnaði.
Bókin Iítur þá eins út á skjá og hún
gerir í hendi. Misjafnt er hve langan
tíma tekur að taka á móti skjalinu,
það fer eftir búnaði kaupanda.
Bækumar era á vef sem tengist
netverslun Máls og menningar, mal-
ogmenning.is. Þar er líka upplýsinga-
og kynningarefni um rafbækur al-
mennt, og lesendur geta séð sýnis-
hom úr bókunum þremur á tölvuskjá
sínum.
\
Á HVERFISGÖTU KL. 17
Himnasending
Svífandi sjónarspil og skrautsýning
yfirogá Hverfisgötu. Ævintýraverur
og listamenn frá eftirsóttasta úti-
leikhúsi ítala, Studio Festi, sýna í
samvinnu viö Þjóðleikhúsið. Sýning-
in fjallar um hamingjuna og byggist á
frumkröftunum fjórum sem einkenna
dagskrá Menningarborgarinnar.
Ómissandi veisla fyriraugað og alla
fjölskylduna. Liðurí Stjörnuhátíð
Menningarborgarinnar.
BORGARBÓKASAFN í GRÓFARHÚSI FRÁ
KL. 14.30
Bókasveifla II
Þetta verður nokkurs konar kvenna-
dagur í safninu þar sem bækur um
og eftir konur verða kynntar. Dag-
skráin, sem að sjálfsögðu eröllum
opin, hefst á því að Júlíkvartettinn
leikur jólalög kl. 14:30 og síðan mun
Úlfhildur Dagsdóttir flytja stutt erindi
um konur og skáldskaþ. Gerður
Kristný, Guðrún Eva Mínervudóttir,
OddnýSen og Súsanna Svavarsdótt-
ir lesa úr nýútkomnum þókum sínum
og Soffía Auður Birgisdóttir les úr
þýðingu sinni á skáldsögu Marianne
Eilenberger, Á lausu. Loks munu
aðstandendur bókaforlagsins Sölku
kynna Matarsögur þar sem spjallað
er við á annan tug íslenskra atorku-
kvenna um mat og matargerð og
dagatal forlagsins með myndum af
íslenskum úrvalskarlmönnum.