Morgunblaðið - 09.12.2000, Síða 58
MORGUNBLAÐIÐ
,,58 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
UMRÆÐAN
Holtaþokuvæl
SÍÐASTLIÐIÐ
mánudagskvöld átti
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson prófessor
við Háskóla ísjands
samtal við Ásdísi
Höllu Bragadóttur
bæjarstjóra á Skjá 11
þætti tengdum frétt-
um sem kallast Málið.
Tilefnið var nýútkom-
in viðtalsbók Ásdísar.
Samtal þeirra var
fróðlegt og málefna-
legt og svaraði Ásdís
skörulega spurning-
um Hannesar um öll
álitaefni sem hann tók
til.
Þar kom að Hannes fór að
spyrja Ásdísi um skoðun hennar á
borgarstjóranum í Reykjavík og
mannkostum þeim sem Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir hefur til að bera
og hafa gert hana að leiðtoga
Reykvíkinga um langt árabil. Þá
rann prófessorinn á hálli jörð.
Hann endurtók þar ósannindi
sem hann hefur tönnlast á í ræðu
og riti um nokkurra missera skeið:
eiginmaður Ingibjargar, Hjörleifur
Sveinbjörnsson, hefði verið ráðinn
yfirþýðandi hjá Islenska útvarps-
félaginu - Stöð 2 - með beinum af-
Stöð 2
Afskipti starfandi
stjórnarformanns
----7-----------------
Islenska útvarps-
félagsins að þessari
ráðningu, segir Páll
Baldvin Baldvinsson,
voru engin.
skiptum Jón Ólafssonar sem þá var
starfandi stjórnarformaður, ekki
vegna hæfni Hjörleifs til starfans -
heldur til að tryggja Jóni sem
kaupsýslumanni aðgang að borgar-
stjóranum í Reykjavík. Og hann
jók um betur í tilgátusmíði sinni,
sem hann hefur í raun haldið fram
sem staðreynd um langt skeið:
annar einstaklingur hefði verið
ráðinn í starfið en Jón hefði með
beinum afskiptum rofið þá samn-
inga og troðið Hjörleifí að.
Lengi vel trúði ég ekki öðru en
að Hannes Hólmsteinn léti af mál-
flutningi af þessu tagi í árásum
sínum á leiðtoga meirihlutans í
borgarstjórn Reykjavíkur, Jón Ól-
afsson og Hjörleif Sveinbjörnsson.
Forráðamenn á íslenskum fjölmiðl-
um hafa nú við aldarlok í ræðum
og riti talið opinbera umræðu
blessunarlega lausa þann illvíga
sóðaskap svívirðinga, rógs og lygi
sem setti svip á öldina
sem nú er að liða.
Málflutningur af því
tagi sem hér var á
ferðinni ætti því að
vera liðin tíð í opin-
beru lífi á íslandi, eins
og Ásdís Halla benti
réttilega á í fyrr-
nefndu samtali. En
Hannes hættir ekki.
Hann heldur áfram og
áfram og spýr þessum
tilbúningi sínum hvar
sem færi gefst til.
Það kom í minn hlut
sem dagskrárstjóri
Stöðvar 2 að auglýsa
starf yfirþýðanda þeg-
ar fyrirrennari Hjörleifs lét af
störfum og flutti úr landi. Hjörleif-
ur var í hópi umsækjenda og kom
ásamt fleirum í viðtal um starfið.
Hann var fljótt í mínum huga álit-
legur kostur í vandasamt starf fyr-
ir margra hluta sakir: reynslu,
þekkingar á íslensku máli, kunn-
áttu um ólík samfélög, smekkvísi
og iðni. Af áralöngum kynnum vissi
ég að hann var réttsýnn, sanngjarn
og málefnalegur. Þess vegna var
hann ráðinn - ekki vegna þess að
hann varð skotinn í stelpu fyrir
aldarfjórðungi og stofnaði með
henni fjölskyldu og stelpan sú
hafði áhuga á stjórnmálum.
Afskipti starfandi stjórnarfor-
manns Islenska útvarpsfélagsins
að þessari ráðningu voru engin -
enda frétti hann ekki af henni fyrr
en málið var um garð gengið. Það
er reyndar hluti af nútímalegum
stjórnunarháttum í rekstri stærri
fyrirtækja, sem Hannesi sem sagn-
fræðingi ætti brátt að skiljast, að
deila ábyrgð og ákvörðunartöku.
Rekstur þýðinga-, flutnings- og
safnasviðs er á minni könnu. Hug-
myndir Hannesar um gang mála
eru því forneskjulegar eins og
holtaþokuvæl í þjóðsögu. Og það
sem meira er um vert: þær eru
ósannar, tilhæfulausar, lágkúruleg-
ur áburður á einstaklinga í opin-
beru lífi.
Er þess að vænta að Hannesi
hætti að nota þennan rýting úr
vopnasafni sínu? Kæra forráða-
menn fjölmiðla sig raunverulega
um málflutning af þessu tagi þó
hann sé á ábyrgð Hannesar eins?
Er það að skapi Árna Þórs Vigfús-
sonar og Páls Kr. Pálssonar,
Matthíasar Johannessen og Styrm-
is Gunnarssonar, Jónasar Krist-
jánssonar og Sveins Eyjólfssonar
að fjölmiðlar falli aftur í þetta
gamla hallærislega far? Ekki trúi
ég því. Þá er bara að vona að vest-
ur á Melum geti menn nákomnir
Hannesi Hólmsteini kennt honum
betri mannasiði.
Höfundur er er dagskrársijóri
Stöðvar 2.
Páll Baldvin
Baldvinsson
Khalifman
og Anand
mætast
í dag á HM
í skák
SKÁK
\ v j a D e I h í
Heimsmeistaramót
FIDE
25.11.-27.I2.2000.
Sigursveit Melaskóla í stúlknaflokki.
FJÓRÐA umferð á heimsmeist-
aramótinu í skák stendur nú yfir í
Nýju Delhí á Indlandi. Úrslit feng-
ust í þremur einvígjum strax eftir
kappskákirnar tvær:
Bartlomiej Macieja - V. Anand 14-114
Rafael Leitao - A Khalifman V2-V/2
A Morozevich - Vladislav Tkachiev V2-W2
Hin fimm einvígin stóðu jafnt að
kappskákunum loknum, þar á meðal
einvígi þeirra Alexei Dreevs og Ves-
elin Topalovs þar sem Dreev vann
fyrri skákina nokkuð óvænt, en
Topalov jafnaði metin af öryggi í
þeirri síðari. í gær þurfti því að
grípa til styttri tímamarka til að fá
úrslit í eftirtöldum einvígjum:
Sigursveit Melaskóla í drengjaflokki.
Michael Adams - Peter Svidler
Alexei Dreev - Veselin Topalov
Jaan Ehlvest - Alexander Grischuk
Aexei Shirov - Boris Gelfand
Evgeny Bareev - Boris Gulko
Stærstu tíðindi umferðarinnar
voru tvímælalaust sigur Tkachievs
(2.657), sem teflir um þessar mundir
fyrir Frakkland, gegn Morozevich
(2.756). Svo virðist sem þetta keppn-
isfyrirkomulag henti Tkachiev vel
og því gæti hann komið aftur á óvart
í þessari keppni.
Það kom hins vegar ekki á óvart,
að Anand og Khalifman komast
áfram í næstu umferð, fjórðungsúr-
slit, enda fengu þeir stigalægstu
andstæðingana. Það verður hins
vegar afar spennandi að fylgjast
með fimmtu umferðinni sem hefst í
dag, því þar mætast einmitt þeir
Khalifman og Anand. Margir telja
að þessi viðureign
heimsmeistarans og
heimamannsins An-
ands, sem flestir spáðu
sigri fýrir mótið, jafn-
gildi í raun úrslitaein-
vígi heimsmeistara-
keppninnar. Fjölmiðlar
á Indlandi sýna keppn-
inni mikinn áhuga enda
binda Indverjar miklar
vonir við að þeirra
maður hreppi heims-
meistaratitilinn. Anand
hefur teflt af miklu ör-
yggi í mótinu, en hefur
enn ekki mætt þeim
allra sterkustu. Khalif-
man (2.667) mætti hins
vegar Peter Leko (2.743) í þriðju
umferð í afar erfiðu einvígi sem stóð
í átta skákir. Hann virtist þreyttur í
einvíginu við Leitao, en var heppinn
að klára það strax í annarri skák og
fá þannig einn frídag til að jafna sig
áður en hann glímir við Anand. Það
er hins vegar hætt við því að léttari
dagskrá Anands fram að þessu eigi
eftir að koma honum til góða.
Jóhann Örn sigrar á
atskákmóti öðlinga
Jóhann Örn Sigurjónsson sigraði
á atskákmóti öðlinga sem fram fór
15.-29. nóvember. Tefldar voru níu
umferðir. Röð efstu manna varð sem
hér segir:
1. Jóhann Örn Siguijónsson 714 v.
2. Kristján Öm Elíasson 7 v. (27,5 st.)
3. Kristján Guðmundsson 7 v. (23,5 st.)
4. Sverrir Norðfjörð 5 v.
o.s.frv.
Keppendur voru 10. Skákstjóri og
aðaldriffjöður öðlingamótanna er
Ólafur Ásgrímsson.
Mela- og Réttarholtsskóli
sigra á grunnskólamóti
Jólaskákmóti grunnskóla í
Reykjavík 2000 lauk 5. desember.
Tefldar voru sex umferðir eftir Mon-
rad-kerfi og var hver sveit skipuð
fjórum skákmönnum. Úrslit í eldri
flokki (8.-10. bekkur) urðu þessi:
1. Réttarholtsskóli 2lVi v. (12 st)
2. Hagaskóli 21!4v. (10 st.)
3. Rimaskóli-A 16 v.
4. Engjaskóli-A 8Vá v.
5. Rimaskóli-B ðióv.
6. Engjaskóli-B 5 v. (2 st)
7. Vogaskóli 5 v. (0 st.)
Réttarholtsskóli sigraði Haga-
skóla í innbyrðis viðureign 21/2-1‘/2.
Sigursveit Réttarholtsskóla skipuðu
þeir Hlynur Hafliða-
son, Grímur Daníels-
son, Flóki Sigurðarson
og Guðlaugur P. Frí-
mannsson.
Sveit Hagaskóla
skipuðu þeir Dagur
Amgrímsson, Hilmar
Þorsteinsson, Halldór
Heiðar Hallsson, Arn-
ljótur Sigurðsson og
Helgi Rafn Hróðmars-
son.
Sveit Rimaskóla (a-
sveit) skipuðu Siguijón
Kjærnested, Ólafur
Gauti Ólafsson, Garðar
Sveinbjörnsson og
Birgir Óm Grétarsson.
I yngri flokki kepptu nemendur
1.-7. bekkjar gmnnskóla Reykjavík-
ur. Úrslit urðu sem hér segir:
1. Melaskóli-A 211/2 v.
2. Ártúnsskóli-A 18 v.
3. Háteigsskóli 15 v.
4. Laugamesskóli 14 v.
5. Rimaskóli 14 v.
6. Melaskóli-B 13V& v.
7. Hlíðaskóli-A 13 v.
8. Korpuskóli-A 13 v.
9 Rimaskóli-B 13 v.
10. Grandaskóli 12 v.
11. Hlíðaskóli-B 11 v.
12. Korpuskóli-B 11 v.
13. Melaskóli stúlkur 10'/2 v.
14. Breiðholtsskóli lO'Av.
15. Breiðholtsskóli stúlkur 9'4 v.
16. Ártúnsskóli-B 8 v.
17. Korpuskóli-C 614 v.
18. Ölduselsskóli 1 v.
Hlutskarpasta stúlknasveitin var
stúlknasveit Melaskóla og hlaut hún
IOV2 vinning.
Báðar sigursveitirnar hlutu veg-
lega farandbikara til varðveislu í eitt
ár auk þess sem þrjár efstu sveitirn-
ar í drengja- og stúlknaflokki hlutu
verðlaunapeninga. Sigursveit Mela-
skóla skiþuðu:
ViðarBemdsenðv.
Víkingur Fjalar Eiríksson 6 v.
Aron Ingi Öskarsson 6 v.
Haraldur Franklín Magnús 414 v.
Stúlknasveit Melaskóla skipuðu:
Hlín Önnudóttir 1 v.
Klara Kristjánsdóttir 3 v.
Aslaug Lára Lárusdóttir 314 v.
Dóra Sif Ingadóttir 1 v. af 3
Ingunn Jensdóttir 2 v. af 3
Fyrirliði Melaskóla var Arngrím-
ur Gunnhallsson. Jólaskákmótið er
samstarfsverkefni Iþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur og Taflfé-
lags Reykjavíkur. Mótsstjóri var
Soffía Pálsdóttir frá ÍTR og skák-
stjórar vora Torfi Leósson og Ólafur
H. Ólafsson.
Stefán Kristjánsson
sigrar á atkvöldi
Stefán Kristjánsson sigraði á at-
kvöldi hjá Taflfélaginu Helli sem
haldið var 4. desember. Hann hlaut
514 vinning í sex skákum. Röð efstu
manna:
1. Stefán Kristjánsson 514 v.
2. -3. Jón Friðjónsson,
LárusKnútsson4!4v.
4.-5. Jóhann Ingvarsson,
Davið Ólafsson4v.
6.-7. Jónas Jónasson,
Sigurður Páll Steindórsson 314 v.
8.-11. Hjörtur Þór Daðason,
SigurðurÆgisson,
Valdimar Leifsson,
Rafn Jónsson 3 v.
o.s.frv.
Keppendur vora 18. Skákstjórar
vora Gunnar Björnsson og Davíð
Ólafsson. Þetta var síðasta atkvöld
ársins, en fyrsta atkvöld Hellis á
nýju ári verður haldið mánudaginn
8. janúar.
Mót á næstunni
16.12. TR. Jólaæfing.
17.12. Hellir. Jólapakkamót.
17.12. SA. 15 mínútna mót.
19.12. TK. Jólapakkamót.
22.12. SA. Fischer-klukkumót.
26.12. TK. Jólahraðskákmót.
27.12. TR. Jólahraðskákmót.
28.12. SA. Jólahraðskákmót.
30.12. SA. Hverfakeppni.
Daði Örn Jónsson
Alexander
Khalifman