Morgunblaðið - 09.12.2000, Side 78
MORGUNBLAÐIÐ
78 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
vemunarmidstöö
Laugardagur:
HANDVERK
frákl.11
Skemmti-
dagskrá
frá kl. 13:00
Þverflautudúett
spilar jólalögiti
Tríó Set Jazzband
spilar alla inn í
jólastemmningu
Jólasveinn
bregður á leik
•
FYRIR BÖRNIN:
Jón Arilíusson
konditor merkir
piparkökur með
nafninu þínu!
Félagar úr
Lúðrasveit
Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar
leika af
fingrum fram
Lesið úr
nýjum bókun
•
...og fleira
Opið tii
18:00
0 ^
bflastæði 1
-os
www.mbl.is
FRÉTTIR
Ályktun miðstjórnar
ASI um skattamál og
samningsforsendur
MIÐSTJÓRN ASÍ samþykkti eftir-
farandi ályktun á fundi sínum mið-
vikudaginn 6. desember:
„Hækkun útsvars án samsvarandi
lækkunar tekjuskatthlutfalls hefur í
för með sér auknar skattaálögur á
launafólk og þar með kjaraskerðingu.
Miðstjóm Alþýðusambands íslands
vill að gefnu tílefni benda stjómvöld-
um á að slíkt gengur þvert gegn
markmiðum kjarasamninganna frá
því síðastliðið vor en þau vora að
treysta undirstöður kaupmáttar. Að
öðm óbreyttu þýða boðaðar breyting-
ar á útsvari og tekjuskattí einnig
raunlækkun skattleysismarkanna en
það gengur þvert gegn yfirlýsingu
rfldsstjómarinnar sem gefin var í
tengslum við gerð kjarasamninganna.
Þar var því lofað að skattleysismörk
myndu fylgja umsaminni launaþróun.
Miðstjóm ASÍ bendir stjómvöld-
um á að allar aðgerðir, sem hafa í för
með sér kjaraskerðingar fyrir launa-
fólk, em til þess fallnar að grafa und-
an forsendum gildandi kjarasamn:
inga. Aðildarfélög og -sambönd ASÍ
töldu að víðtæk sátt hefði náðst um
kjarasamninga sem stuðluðu að
áframhaldandi stöðugleika, tryggðu
undirstöður kaupmáttar og bættu
sérstakiega stöðu þeirra sem lakast
stóðu fyrir. Það er því ábyrgðarhlutí
af hálfu stjómvalda að grípa til kjara-
skerðinga gagnvart launafólki nú,
ekki síst í Ijósi þess að gangi nýjustu
spár um verðlagsþróun eftir mun stór
hlutí launafólks verða fyrir kaupmátt-
arskerðingu á næstu misserum. Þetta
er enn alvarlegra í ljósi þess að
stjómvöld létu hjá líða að grípa tíl af-
gerandi aðgerða til að draga úr
þenslu þegar öll hættumerki blöstu
við á árunum 1998 og 1999.
Miðstjómin ítrekar athugasemdir
Hagdeildar ASÍ um skaðsemi hag-
stjómar sem ýtir undir og ýkir hag-
sveiflur í efnahagslífinu í stað þess að
reyna að draga úr þeim og tryggja
stöðugleika. Náist markmið kjara-
samninganna um stöðugleika og
traustan kaupmátt ekki verður það
ekki aðeins dýrt fyrir launafólk held-
ur atvinnulífið og samfélagið allt.
Miðstjóm ASÍ heitir því á stjórn-
völd að taka þátt í því að verja lífskjör
launafólks og forsendur kjarasamn-
inganna í stað þess að grafa undan
hvom tveggja. Mikilvægast er að
stjórnvöld grípi ekki til neinna að-
gerða sem auka verðbólgu eða skerða
kaupmátt launafólks með öðrum
hætti.
Orð skulu standa"
Styrkur gef-
urút jólakort
STYRKUR, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
hefur gefið út nýtt júlakort til ág-
óða fyrir starfsemi samtakanna.
Á kortinu er vetrarmynd frá
Ægissíðu eftir Bjarna Jónsson
listmálara. Kortin verða m.a. seld
á skrifstofu Krabbameinsfélags-
ins.
Aðventuhátíð
Bergmáls
LÍKNAR- og vinafélagið Bergmál
heldm- árfasta aðventuhátíð sína í
Háteigskirkju sunnudaginn 10. des-
ember kl. 16. Sem fyrr verður dag-
skráin vönduð.
Að lokinni athöfn í kirkjunni býð-
ur Bergmál hátíðargestum veitingar
í Safnaðarheimilinu. Allir em hjart-
anlega velkomnir.
Skora á ríkisvaldið að
ganga til samninga
FUNDUR kennara í Félagi kennara
Menntaskólans í Reykjavik og
Kennarafélags Fjölbrautaskólans í
Garðabæ, sem haldinn var þriðju-
daginn 5. desember sl., skorar á rík-
isvaldið að ganga þegar til samninga
við framhaldsskólakennara og verða
við sanngjömum kröfum þeirra um
launaleiðréttingu til jafns við aðrar
háskólamenntaðar stéttir ríkis-
starfsmanna, segir í ályktun frá fé-
lögunum.
Einnig segir: „Framtíð framhalds-
skólanema og framhaldsskólans er
stefnt i voða eftir því sem verkfallið
dregst á langinn.
Jafnframt lýsir fundurinn yfir
eindregnum stuðningi við samninga-
nefnd Félags framhaldsskólakenn-
ara og formann félagsins, Elnu Katr-
ínu Jónsdóttur“.
Ályktun frá kennurum
Menntaskólans við Sund
Kennarar Menntaskólans við
Sund hafa sent frá sér eftirfarandi
ályktun sem samþykkt var einróma
5. desember sl.:
„Fundur kennara Menntaskólans
við Sund áréttar að yfírstandandi
kjaradeila verður ekki leyst öðmvísi
en að launastefna ríkisins gagnvart
háskólamenntuðum starfsmönnum
sínum taki einnig til íramhaldsskóla-
kennara. Að öðmm kosti munu
framhaldsskólarnir bera enn skarð-
ari hlut frá borði í harðnandi sam-
keppni um háskólamenntað vinnuafl
og ný námskrá reynast innantómt
orðagjálfur. Það þola skólamir ekki
lengur án þess að bíða varanlegt tjón
með ófyrirsjáanlegum afleiðingum
fyrir framtíð menntunar í landinu.
Fundurinn hvetur alla, sem vilja
ekki horfa aðgerðalausir á innviði og
grundvöll framhaldsskólanna
bresta, að láta málið til sín taka á op-
inberam vettvangi. Ekki er aðeins í
húfi hagur þeirra nemenda, sem nú
gjalda saklausir hnignunar og upp-
lausnar í framhaldsskólum landsins,
heldur einnig framtíðarhorfur nem-
enda í grannskóla og leikskóla.
Fundarmenn lýsa stuðningi við
samninganefnd kennara og heita
henni fulltingi sínu við að ná fram
þeirri leiðréttingu á launum fram-
haldsskólakennara, sem er óhjá-
kvæmileg forsenda fyrir eðlilegu
skólastarfi í framtíðinni.“
Notaleg stæði í sex bílahúsum bíða þín í jólaumferðinni