Morgunblaðið - 09.12.2000, Side 82
^82 LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
SJADU TTL, ES MAN
PESAR EG VARÖ 22..
Hundalíf
Ferdinand
Smáfólk
A Thanksqivínq Story
“Youturkey!”she cr ied.
“Who’s aturkey?”
“You, you turkey!”
Þakkargjörðarhátíðarsaga
“Þú kalkúnn” kallaði hún.
“Hver er kalkúnn?”
“Þú, þú kalkúnn!"
“Listentowho’s talkíng,
you meat loaf!”
“ l’d rather bea meat loaf
than a turkey, you turkey! ”
TMANKSélVlNé STORlE5
^ AREHARPTOWRITE..
“Gáðu hver talar, lqöthleifurinn þinn!”
“Ég vildi frekar vera kjöthleifur en
kalkúnn, kalkúnninn þinn!”
Það er erfitt að skrifa
þakkargjörðarhátíðarsögur..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Sigurlaug Garðarsdóttir, formaður Kvenfélags Garðabœjar, og Rann-
veig Hafsteinsdóttir gjaldkeri afhenda Matthiasi Guðmundi Péturssyni,
formanni sóknarnefndar, framlag í gluggasjóð Vídalínskirkju.
Helgun g’lugga
V ídalínskirkj u
Frá Matthíasi Guðmundi
Péturssyni:
NÚ FER 1000 ára afmælisári kristni
senn að ljúka. Söfnuðir um allt land
sem lagt hafa á sig mikla vinnu við
undirbúning hátíðarhaldanna hafa
uppskorið eins og til var sáð. í Kjal-
amesprófastdæmi, þar sem ég hef
helst fylgst með hátíðarhöldunum,
finnst mér vel hafa til tekist og er
það því prófastdæmi til mikils sóma.
Við undirbúning í Garðasókn fyrir
hátíðarhöldin var m.a. leitað í smiðju
menningarmálanefndar Garðabæjar
eftir samstarfi og tókst það sérstak-
lega vel. Menningarmálanefndin
kom með þá hugmynd að setja í
kirkjuna skrautgler, vel var tekið í
það enda tilefnið kærkomið, þ.e.
kristnihátíðaár í tilefni 1000 ár af-
mælis kristni á íslandi.
Ákveðið var að fá listamannin Leif
Breiðfjörð til að koma með hugmynd
um gerð listaverksins. Fékk hann al-
gjörlega frjálsar hendur um hug-
myndir og kom hann fljótlega með
tillögu sem hann lagði fyrir sóknar-
nefndina. Hugmyndin er úr Fyrstu
bók Móses, Sköpun heims og frum-
saga, en þar segir í byijun. „í upp-
hafi skapaði Guð himin og jörð. Jörð-
in var þá auð og tóm og myrkur
grúfði yfir djúpinu, og andi Guðs
sveif yfir vötnunum. Guð sagði:
„Verði ljós!“ og þá varð Ijós. Guð sá
að ljósið var gott, og Guð greindi
ljósið frá myrkrinu. Og Guð kallaði
ljósið dag en myrkrið kallaði hann
nótt. Það varð kveld og það varð
morgunn, hinn fyrsti dagur. Guð
sagði: „Verði festing milli vatnanna,
og hún greini vötn frá vötnum.“ Þá
gjörði Guð festinguna og greindi
vötnin, sem voru undir festingunni,
frá þeim vötnum, sem voru yfir
henni. Og það varð svo og Guð kall-
aði festinguna himin.“
Strax var sóknarnefndin mjög
hrifin af hugmynd listamannsins og
var hann beðinn að útfæra hana enn
betur. Eftir það var ekki aftur snúið
enda allir mjög ánægðir með hana og
útfærslu Leifs á steinda glerinu fyrir
kirkjuna okkar. Frá upphafi árs hef-
ur verið unnið að því að fjármagna
verkið. Hefur það gengið ágætlega
enda margir tilbúnir að leggja
kirkjunni lið í þeim efnum. Má þar
nefna m.a framlag Garðabæjar sem
var 1000.000,- króna, eða andvirði
tveggja glugga. Kvenfélag Garða-
bæjar var einnig mjög rausnalegt við
sitt framlag, það sama má segja um
Lionsklúbbana í Garðabæ sem gáfu
heilan glugga. Sinawik-klúbbur
Garðabæjar og Kiwanis-klúbburinn
Setberg hafa stutt verkefnið, svo og
nokkur fyrirtæki, klúbbar og ein-
staklingar sem ekki vilja láta nafns
síns getið.
Öllum ofangreindum aðilum er
sóknarnefnd Garðasóknar mjög
þakklát fyrir örlæti við framlög og
ekki síður fyrir þann jákvæða hug
sem þeir bera til kirkjunnar sinnar.
Gluggarnir eru komnir í kirkjuna
okkar og lýsa vel handbragði lista-
mannsins. Þeir eru mjög fallegir og
það verður gaman fyrir prestana að
kenna og leiðbeina úr kristnum
fræðum ungu fólki með þeim. Við
sem að þessu stöndum erum þess
fullviss að þetta verður til að fegra
Vídalínskirkju og til blessunar á
starfi okkar.
Helgun glugganna fer fram við
messu sunndaginn 10. desember kl.
14. Vígslubiskup í Skálholti, Hr. Sig-
urður Sigurðarson sér um vígsluna.
Kaffiveitingar verða að lokinni at-
höfn.
MATTHÍAS GUÐMUNDUR
PÉTURSSON,
sóknarnefndarformaður
í Garðasókn
í Kjalarnesprófastsdæmi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.