Skírnir - 01.01.1874, Blaðsíða 38
38
ALMKNN TÍÐINDI.
bjargaö. J>a0 hjet Loch Earn og var frá Englandi. HafSi J>a?
líka fengið svo miklar skemmdir af skellinum, a8 þaS sökk
eptir fárra daga siglingu, en mönnunum varS þó bjargaS af
skipi, er bar þar aS. þriSja stórslysiS varS í Frakklands-
sundi í fyrra vetur skömmu eptir nýjár, meS sama hætti og þaS,
er nú var getiS SkipiS, sem fórst, hjet Nortbfleet og ætlaSi
til Ástraiíu frá Englandi, meS járnbrautarefni. Skammt eitt frá
landi sigldi á þaS spænskur kuggur allmikill, er Murillo nefndist,
og rann þegar koiblár sjór inn í Northfleet, en Murillo hjelt leiSar
sinnar og sinnti alls ekki ópi hinna, sem voru aS drukkna.
þar týndu 300 manna lífi, áSur bjálp kæmi úr iandi, og mundu
langtum fleiri hafa farizt, ef skipstjóri hefSi eigi sýnt af sjer
frábært snarræSi og hugprýSi. Hann hjet Knowies og varS
sjálfur einn í tölu þeirra, er drukknuSu. Skipstjóranum á
Murillo var síSar refsaS fyrir varmennskubragS sitt.
Kólera hefir enn þetta ár sem aS undanförnu veriS á
ferSinni víSa um allan austurhluta álfu vorrar, og komst jafnvel
vestur í París í sumar. Mjög skæS varS hún þó hvergi, nema
á Ungverjalandi. J>ar banaSi bún frekum hundraS þúsundum manna
um sjálfan sumartímann. Á áliSnu sumri stakk hún sjer niSur
á Skáni, og dóu nokkur hundruS manna úr henni í Helsingja-
borg og þar í grennd. Til Danmerkur kom hún ekki í þetta
skipti. þar á móti kom hún viS í Björgvin snöggvast í baust.
Nýlega hefir líka frjettzt til liennar á Hollandi. J>á varS og
vel vart viS hana í Bandarikjunum í sumar. — Á öSrum stór-
sóttum hefir lítiS boriS.