Skírnir - 01.01.1874, Blaðsíða 56
56
ENGLAND.
til Englands, þótti þa<5 sneypa mikil, aS þola ósknnda og barn-
ingar af slíku hundþýSi sem blámönnum Ashantee-konungs.
Var nú tekið til, og búinn út leiSangur suSur á Gullströnd, og
ekki til sparaS, aS förin mætti vel takast. Yfir leiSangursliSiS
var settur höfSingi sá, er Garnet Wolseley heitir, hreystimaSur %
mikill og hinn öruggasti til allrar framgöngu. Hann er aS eins
fertugur aS aldri og yngstur hershöfSingja Breta, en hafSi aflaS
sjer mikils orðstírs í ófriSnum á Krím, í Indlandsupphlaupinu og
leiSangrinum austur í Kína 1859. Ekki var herinn meiri en
þrjár þúsundir manna, og skyldi neyta blámanna af Fantee-
þjóS og öSrum kynkvíslum, þeim er Bretum eru sinnandi, -til
fyllingar flokki þeirra. f>eir tóku land á Guineaströnd skömmu
fyrir höfuSdag og tóku landsbúar (af blámannakyni) Bretum meS
miklum fögnuSi. Var þeim mikil forvitni á aS sjá hershöfSingja
þann, er Bretadrottning gjörSi út til aS vinna „hinn mikla konung
Ashanteemanna". Býr Wolseley hershöfSingi nú liS sitt og
leggur af staS móti her Ashantee-konungs skömmu fyrir vetur-
nætur. En því hófu Bretar herför sína undir vetur, aS um
þann tíma árs viSrar bezt á Guineaströnd og þá er landiS skárst
yfirferSar. Svo er sagt, aS Ashantee-menn berjast meS þeim
hætti, aS þeir fela sig í skógum og öSrum fylgsnum og bíSa þar
skotfæris; fara dreift og aldrei í fylkingu, og er illt aS festa
hönd á þeim. Veitti Bretum allerfitt viS þá framanaf, og tóku
öfundarmenn Englendinga aS spá þeim verstu háSungar af för
þessari. HafSi þó miklu felmtri slegiB á blámenn hiS fyrsta
skipti, er sprengikúlu laust niBur í liBi þeirra, og þótti þeim
Bretar æriS fjölkunnugir. VarS Bretum seinfariB mjög meB
farangur sinn, slíkar vegleysur og torfærur sem þeir áttu yfir aS
sækja; höfSu þeir og engin akneyti eSa áburSardýr, því aB
slíkar skepnur tímgast eklti suSur þar; verSur allt aS flytja á
mönnum og höfBu Bretar konur Fanteemanna fyrir áburSar-
klára. En meS því aB Wolseley hershöfSingi sótti djarflega
fram og kappsamlega, og liB hans var betur búiB en her Ashantee-
konungs, kom þar aS lokum, aS blámenn sáu sitt óvænna og
tóku ab hafa sig undan heim til átthaga sinna. Prah heitir á,