Skírnir - 01.01.1874, Blaðsíða 132
132
SPÁNN.
beztn stjórnarskipanir verða gagnslausar. Allar þjóðir hjer í
álfn aSrar en Spánverjar eru löngu skriínar úr vetrarhíbi mi?i-
aldanna og teknar til starfa til framfara sjer; þeir liggja þar
enn. Ymist er yfir þeim dimmnr drnngi hngdoða og að-
gjörSaleysis, eía þeir gana áfram í ærslum og ógangi eptir
óljósum hugarbnrSi og innblæstri klerka; þeir eru ýmist
bljúgir alveldisþrælar eía rammauknir lýövaldsgarpar. Nú er
það vitaskuld, að Spánverjar hafa og sína kosti, sem hver þjóS
önnnr; þeir eru hraustir og hugprúbir, nnna manna mest landi
sínu og þjóSerni, eru mestu hófsemdarmenn og ákaflega vandir aS
virðingn sinni, og trúmenn miklir, meS allri bjátrúnni. Eigi er
þaS og nema meSal alþýSu, á aS gizka fimm sjöttu hluta landsbúa,
aS fáfræbin er svo megn. Hinir eru eins vel aS sjer og samskonar
fólk gjörist annarstaSar, og til eru þar afbragSsmenn aS lærdómi
og hverskonar andlegri atgervi. En þaS stoSar lítiS; þeir fá
eigi ráðiS við mátt myrkranna og löstu þá, er áSan nefnd-
um vjer.
J>aS er eigi öfundarverS æfi, er Spánverjar hafa átt áriS
sem leiS. LandiS hefir veriS líkast til aS sjá sem áralaus bátur
í hafróti, og allir innanborSs í einni áflogabendu. Ekki gengiS
á öSru en róstum, upphlaupum, byltingum og málaflækjum viS
erlend ríki; fjórum sinnum vei’iS skipt um ríkisstjóra á 11 mán-
uSum; ráSgjafaskiptin óteljandi; ríkiS hvaS eptir annaS komizt
i ókleyfar fjárkröggur. — Vjer liðum frásöguna í klausur eptir
forsetaskiptunum og upphlaupunum.
Figueras hjet fyrsti forselinn, er viS tók af Amadeo
konungi, í miSjum febrm. Af ráSanautum hans var helmingur-
inn úr liSi Zorilla, er síSast stýrSi ráSaneyti hjá Amadeo. þeir
voru konungsmenn og ekki þjóSvaldsmenn, en höfSu reyndar
ætlazt til aS konungur hefSi engin ráS. Hinn helmingurinn í
ráSaneyti Figueras voru lýSvaldssinnar og þaS meS þeim hætti,
aS þeir vildu gjöra úr Spáni mörg bandariki meS lýðvaldsstjórn,
að dæmi Vesturheimsmanna eSa Svisslendinga. KölluSu þaS einkar-
vel falliS, fyrir sakir ólíkra landshátta og sundurborinna þjóS-