Skírnir - 01.01.1888, Page 16
18
EVRÓPA ÁRIÐ 1887.
«Buda Pesti Közlöny» úthúðaði Rússum. þá kom 15. desember
grein i blaði hinnar rússnesku hermálastjórnar, Invalide Russe, sem
sagði, að Austurríkismenn og {jjóðverjar hefði meira herlið,
fleiri járnbrautir og fleiri fallbyssur við landamærin, en Rússar
og það væri til varnar en ekki til sóknar, að þeir jyku her
sinn á þessum stöðum. Nú komu ýms svör í blöðum á þýzka-
landi og i Austurriki, en svar frá hinni þýzku hermálastjórn
kom ekki fyr en í janúar 1888, og fór fram á, að sanna hið
gagnstæða við Invalide Russe. Um nýjársleitið voru miklir
kuldar og vetrarríki á landamærum Austurrikis og Rússlands,
enda kvað Rússar ekki draga meiri her þangað sem stendur.
Austurríkismenn sögðu, að nú mundi reyna á bandalagið við
þýzkaland, varnarsambandið, sem hefur staðið siðan 7. okt. 1879.
Vmsar raddir meðal Slafa og Tjekka í Austurriki lýstu yfir
þýðu hugarþeli sinu til Rússa um áraskiptin.
Imperial Federation. Fjórðnngnr mannkynsins í bandalögnm.
Vöxtnr og viðgangnr Bretaveldis og ensks þjoðernis. Breta-
veldi (the British Empire).
Nýlendnasýningin í Lundúnum 1886 opnaði augun betur
á Englendingum fyrir því, að íjórðungur mannkynsins og sjött-
ungur jarðarinnar lýtur þeirra valdi. Árið 1884 var stofnað
félag í Lundúnum, sem heitir Imperial Federation League.
Mark þess er, að koma öllum löndum Bretaveldis i bandalag,
sem likist Bandafylkjunum i Norður-Ameríku. þegar hin 65
lönd, sem Englendingar eiga út um jörðina i öllum álfum, eru
komin í bandalag, þá eru þeir ekki komnir upp á neina aðra
þjóð að neinu leyti. Allt það, sem jörðin framleiðir eða mann-
legt hugvit smíðar, hafa þeir sjálfir og þurfa ekki að sækja
það til annara. Fulltrúar frá nýlendum Breta komu á fund í
Lundum vorið 1887 til að ráðgazt um, hvernig bezt mætti
tengja saman, betur en nú er, þetta mikla veldi. Fundurinn
sneri sér mest að því, að auka samgöngur, enda þarf þess við
i þessu viðlenda ríki. Um póstgöngur, gufuskipaferðir, hrað-
fréttaþræði o. fl. var talað á þessum fundi. þeir áttu að tala