Skírnir - 01.01.1888, Page 50
52
RÚSSLAND.
I Austurriki
I Serbiu
I Búlgariu og
Tyrklandi
1 Prússlandi
I Montenegro
(Tsrnagora)
18 miljónir Slafa (Tjekkar, Pólverjar o. s. frv.)
2 — Serba.
5 — Búlgara.
2*/a — Pólverja.
2—300,000 Svartfellinga.
27 miljónir og 7—800,000.
Mál þessara slafnesku þjóðflokka, eru svo lík, að t. d.
Rússar og Bálgarar skilja hvorir aðra betur en Danir og Svíar.
í fyrsta lagi er sterkt ættarband milli þessara þjóðflokka; í öðru
lagi er milli þeirra trúarband, því 4/s þeirra eru grískkaþólsldr.
Af því að jeg hef aldrei séð kenningar Panslavistanna (Al-
slafa) framsettar á islenzku, þá set jeg hér nokkuð um þær,
sem að mestu er tekið eptir prófessor Lamanskí i Moskva.
Hann er aðalforingi þeirra eptir dauða Katkoífs. Hann ritar,
að forsjónin kalli Rússland, hinn rétttrúaða austur- og Slafa-
heim, í risavaxna styrjöld likt og 1812 (móti Napóleon mikla)
móti kaþólskunni (rómversku) og þýzkunni fyrir framtíðinni og
fyrir andlegu og líkamlegu frelsi. 1 hinu slafneska alríki, sem
er að skapast, verður Rússland að hafa öndvegið. þó að
Pétursborg sé kölluð helg, Sankt-Peterburg, þá á hin heilaga
Moskva að vera höfuðborgin, og hinn hviti, rétttrúaði tsar, sem
er drottinn og einvaldur allra Rússa (impjerator í samoder-
sjets vesorossiski), verður drottinn og einvaldur allra Slafa.
Erfðaskrá Péturs mikla (sem Danir og Islendingar hafa ætið
sagt að væri leiðarstjarna Rússa er) ekki til. Slöfum er af for-
sjóninni og náttúrunni ætlað það hlutverk að sitja í öndvegis-
sæti mannkynsins, þegar vesturþjóðirnar velta úr því, sem ekki
liður á löngu, þvi öll þeirra menntun er rotin og fúin. Vest-
urþjóðirnar tóku við af Rómaveldi og nú taka Slafar við af
þeim. Alslafar fyrir utan Rússland vilja líka safna Slöfum i
eina heild, en vilja ekki láta Rússa fara með sig eins og þeir
fóru með Pólverja. Rússar segja, að Pólverjar i Galizíu hafi
ekki farið betur með hina rauðu Rússa þar í landi. Bandalag
og vináttu við Rússa vilja allir Slafar nema Pólverjar. Samt