Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1905, Side 8

Skírnir - 01.04.1905, Side 8
104 Nokkur orð um lífsaflið. ur er, hefur þau áhrif á lifandi liold umhyerfls, að bólg'a hleypur í það; það greíur venjulega kring um drepið, og afleiðingin verður sú, að dauði parturinn losnar burt, sjálfkrafa segjum vér, en í raun réttri vegna líf- starfa holdsins umhverfls. Það hafa ef til vill einhverjir ykkar reynt það, að minsta kosti heyrt talað um, að beinflísar gangi stund- um út úr fingri eftir fingurmein, eða úr kjálka eftir tannkýli. Þessar flísar eru þeir partar beinsins, sem drep hefur hlaupið í, og það ra'ður að líkindum, að það þurfi töluverða lífsstarfsemi til að losa stvkki úr beini, enda tekur það oftast langan tíma, þeim mun lengri sem stykkið er stærra. En lífsaflið gerir þetta, og það hættir ekki að starfa þegar er dauðu partarnir eru lausir, því þá tekur við ný starfsemi til að fylla upp holuna, sem myndaðist, og að bæta upp missinn. Stundum kemur, upp úr bólgu, drep gegnum beinið alt. Þá er ekki nóg með það að þetta stykki losni, heldur myndast nýtt bein utan um það dauða og í stað þess. Að öðrum kosti mundi sá limur verða gagnslaus. Sama er að segja um drep í öðrum líkamspörtum en beinum. T. d. ef tær kala eða útlimir. Það kemur bólga á mótunum á lifandi og dauðu, og með tímanum losnar hinn dauði limur frá. Raunar er sjaldnast beðið eftir því. Læknishjálpar er leitað fyr; en lífsattið er tekið til starfa á undan lækninum, þótt það í þessu dæmi þyki ekki hentugt að bíða eftir því að það fullkomni sitt verk. En fari svo að beðið sé eftir því að limurinn losni, þá heldur lífsatiið áfram að bæta. Þá grær smámsaman fyrir stúfinn og mvndast ör. Sama máli er að gegna, ef drepið er í innýflum. Það losnar þar einnig frá því lifandi, eða réttara sagt: Það lifandi losar það dauða frá sér. En þó þessi dæmi sýni ljóslega mátt lífsaflsins, þá kemur það einnig fram að starf þess er í blindni. Að vísu er starf þess jafnaðarlegast, þegar svona stendur á, heppilegt, en jafnvel þótt svo standi á, að starf þess sé

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.