Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1905, Page 15

Skírnir - 01.04.1905, Page 15
Nokkur orð um lifsaflið. 111 þess að lífsaflið losi það dauða burt. Þeir spara tíma bæði með því að losa burt það sem dautt er með skurði eða á annan hátt, og með því að haga svo til að unt sé að sauma skinnið fyrir endann, svo að það grói þannig á miklu skemmri tima en annars, grói Jokaö, og að örið verði á hentugum stað. Læknarnir hafa fremur öðrum lært það, að það er fásinna að stritast móti náttúrunni. Þeir hafa lært að fylgja bendingum hennar og að ryðja tálmunum úr vegi lífsaílsins, þegar það er mögulegt. Það er þeirra sómi, en ekki ámælisvert. Hins vegar er engin ástæða fyrir þá að reyna að láta líta svo út sem þeir geri meira en þeir geta. Eg hef fjölyrt um þetta, af því oftrú rr.anna á mætti læknanna og meðala getur haft skaðlegar atieiðingar. Það er margreynt, að ef einhver sker sig, þó ekki sé nema lítið, t. d. í fingur, þá hugsar hann nálega eingöngu um að setja meðul við í því skyni að stöðva blóðrásina, en tekur ekkert tillit til hins, hvort þessi meðul varna bak- teríum inngöngu. Þvert á móti: oft og einatt eru hús- ráðin þess eðlis, að með því er beinlinis troðið bakteríum inn í skurðinn. Skynsamlega aðferðin er sú, að hugsa ekkert um meðul til að stöðva blóðrásina, heldur nota í því skyni eingöngu þrýsting, en forðast að láta nokkuð óhreint komast að skurðinum. Tóbaksblöðkur, kerlingareldur og þess konar rusl ætti ekki að sjást, heldur hreint léreft vætt i kar- bólvatni eða ef það er ekki til, þá í soðnu vatni, og svo á að vefja þétt um. Það eru víst ekki dæmi til þess að mönnum hafi orðið smá fingurskurðir hættulegir vegna blóðmissis, en hitt er algengt, að þeir hafa orðið orsök til alvarlegrar bólgu, örkumla og jafnvel dauða, af því menn hafa ekki hreinsað skurðinn og bakteríur svo verið búnar að festa sig í holdinu áður en læknis var vitjað. Oftrú almennings á megni læknanna og meðala er líklega að nokkru leyti orsökin til þess að fiestum hættir til að hugsa lítið um að fyrirbyggja sjúkdóma. Það hefur

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.