Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1905, Page 18

Skírnir - 01.04.1905, Page 18
114 Nokkur orð um lifsaflið. eða skorið er í það. Eitlarnir hafa þá fallið í vöminni, en hafa samt getað verndað líkamann fyrtr »blóðeitrun«. En stundum komast þær líka fram hjá því virkinu, sem eitlarnir mynda og inn í blóðið, en jafnvel þar er haldið uppi vörnum, og kornin í blóðinu »éta« og drepa margar bakteríur sem komast þangað. Mörgum næmum sjúkdómum er svo farið, að þeir sem eru búnir að fá þá einu sinni, verða aigerlega, eða því sem næst, ómóttækilegir fyrir þá upp frá því. Eg- þarf ekki nema að minna á mislinga og bólu í þessu efni. Það eru mjög miklar líkur til, að allir næmir sjúkdómar stafi af bakteríum eða að minsta kosti lifandi sóttkveik- jum. Menn vita það með vissu um marga þeirra. Enn sem komið er, vita menn ekki fyllilega, hvernig á þvi stendur, að menn verða ómóttækilegir þegar þeir hafa haft veikina, en það er farið að rofa nokkuð til i þokunni, sem hvíldi yflr þessu atriði, þótt menn séu ekki enn komnir upp á sjónarhól, sem veiti svo mikið víðsýni, að það taki því í þetta sinn að útlista það frekar, en að eins má taka það frarn, að það er ekki oítalað, þótt það sé þakkað lífsaflinu, sem, að minsta kosti eftir suma sjúk- dórna, myndar ný varnarefni, sem geymast í líkamanum skemmri eða lengri tíma. Blóðvatn þeirra sjúklinga, sem flafa læknast af barnaveiki, hefir í sér varnarefni rnóti þeirri veiki. Vitneskjan um þetta er undirstöðuatriðið undir blóðvatns- lækningum, sem nú tíðkast með allgöðum árangri við þeirri veiki. Dýr eru sýkt með veikinni, og þegar þau eru orðin heilbrigð aftur, er blóðvatnið úr þeim notað til að lækna manneskjur sem hafa sýkst. 2. I ’arnir lík- virðast yfirleitt vera lítilsmegnandi. Raun- amans móti ar veitir skinnið óbilandi vörn móti mörg- eitri um sterkum eiturtegundum, eingöngu af því að eitrið kemst ekki gegnum hornlagið, sem hylur það. En jafnskjótt sem þessar sömu eiturteg- undir komast á slímhimnurnar, komast þær inn í blóðið

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.