Skírnir - 01.04.1905, Blaðsíða 52
148
Leturgerð og leturtegundir.
Árangurinn varð sem sé stafrófið, þau hin fáu og
einföldu tákn, sem menningarþróun nútímans er frá runnin.
En fáir hugsa út í það feiknaerfiði sem það hefur kostað
mannsandann að komast svo langt. Jafnvel hin einfald-
asta leturgerð á að baki sér strit og stríð margra kyn-
slóða. Þúsundir ára liðu áður en maðurinn komst upp á
það að mynda liljóð. er hann gat skýrt öðrum frá hugsun-
um sínum með. Og svo liðu enn nokkrar þúsundir ára áður
en þessi hljóð höfðu fengið svo fasta og fullkomna mynd,
að unt var að tengja þau við ákveðin, sýnileg tákn og fá
þannig enn betri tæki til að láta hugsanir sínar í ljósi.
En hvort tveggja, rit og ræða, er í fyrstu var óákveðið
og óljóst, hefur smátt og smátt tekið framförum og stig
af stigi fengið fastari og fullkomnari mynd.
Saga leturgerðarinnar er aðeins lítill kafli í sögu alls
mannkynsins — og framþróun mannkynsins á aldanna rás
er aðeins einn þáttur í framþróun alls hins lífræna heims,
sem byrjar með fyrsta frjóanganum og nær til ment-
uðustu og bezt gefnu manna sem nú lifa, og heldur áfram
í óþektum lífmyndum framtíðarinnar; og alt af er orð-
takið Excelsior, Excelsior — hærra, hærra! En þótt saga
leturgerðarinnar kunni að virðast lítiifjörleg, þegar hún
er skoðuð sem þáttur í svo viðtækri heild, þá fær hún
þó fyrst alment gildi, þegar hún er skoðuð í því sambandi.
Eins og munnmálið eflaust á aðalega rót sína að rekja
til þarfarinnar á því að skilja aðra og verða skilinn af
þeim, eins víst er hitt, að löngunin til að varðveita endur-
minningguna um hitt og þetta hefur átt upptökin að
myndun ritmálsins. Rit og ræða eru runnin af félagslífi
manna. Væru allir einbúar, þyrfti ekki á ræðu né riti
að halda.
Rússneski rithöfundurinn Dostojewsky segir einhvers-
staðar, að menn ljúgi sig áfram, þangað til þeir flnna
sannleikann, og á hann við það, að mönnum skjátlist hvað
eftir annað, þangað til hið rétta er fundið. Skýr sönnun
þessara orða eru fyrstu fálmandi tilraunirnar í leturgerð,
ef nefna má því nafni hina ófullkomnu tilburði fornaldar-