Skírnir - 01.12.1908, Qupperneq 41
Ofát.
329
r
kjötinu er eggjahvítan, og því nær ekkert annað en eggja-
hvíta. Og sama er um magran íisk. Fiskur og kjöt er
að efnasamsetningi nær því eins.
Brauð og kornmatur með góðu viðmeti, smjöri, floti
eða tólg, mjólk og mjólkurmatur, skyr og grautar, þetta
eru alt hinir hollustu réttir, og eiga að vera aðalfæða vor
íslendinga. Kjötið og flskurinn eiga að vera oss til smekk-
bætis og búdrýginda, en ekki aðal-undirstöðumaturinn,
eins og margir hafa viljað halda.
Annars væri á margt að minnast, ef fara ætti út í
að tala um mataræði vort Islendinga og verður það að
bíða annars tækifæris. Það er margt óholt, setn vér
borðum, of mikið af súr- og saltmeti o. s. frv., en það
heyrir ekki til efni þessarar greinar að fara frekar út
í það.
Eg vildi óska, að þessi grein mætti vekja forvitni
manna eftir að kynna sér nánara þær bækur, sem eg hefi
minst á. Þau málefni, sem þær ræða um og eg hefi lítil-
lega drepið á, eru ofarlega á dagskrá um allan mentaðan
heim. Staðhættir lands vors hafa það í för með sér, að
oss verður aldrei unt að fylgja Hindhede út í æsar, en
eigi að síður getum vér hagnýtt oss margt af kenningum
hans.
STEINGKÍMUR MATTHÍA880N.