Skírnir - 01.12.1908, Page 94
382
ísland árið 1908.
Ameríkuferðir hafa engar verið, er teljandi sé, þetta.
ár. Þar á móti hafa nokkurir tugir Islendinga vitjað heim til átt-
haganna, al-fluttir vestan um haf.
Á þessu ári hefir verið gerð leit mikil eftir kolanámum
í Dufansdal í Barðastrandars/slu og á Skarðsströnd við Breiðafjörð
í landi jarðanna Níps, Tinda og Heiðnabergs; er álit fróðra manna
í þeim efnum, að á báðum stöðunum muni vera steinkolanámur,
en óvíst enn, hversu aðgengilegar þær séu.
B r u n a r hafa orðið miklir á þessu ári. Eru hér taldir flestir
þeir stærstu: Um áramótin síðustu brann hús Helga bakara
Eiríkssonar í Keflavík. 29. jan. brann verzlunarhús Guðjáns og
Hallgríms Hallgrímssona á Hjalteyri við Eyjafjörð. 13. marz
brann íbúðarhús N. Nielsens kaupm. á Seyðisfirði, kvenmaður skað-
brendist þar og dó nokkuru síðar. 13. apr. brann mestallur bærinn
á Yíðivöllum í Skagafirði. 24. júlí brann íbúðarhús í Skarfanesi á
Landi. 10. okt. brann bær á Þrasastöðum í Fljótum. 18. október
brunnu þrjú hús í Akureyrarkaupstað, Hótel Oddeyri og verzlun-
arhus Sigurðar Faundals. 30. nóv. brann smíðahús Antons Jens-
sonar á Akureyri.
H e i 1 s u f a r. Mislingar komu upp vestur á Snæfellsnesi í
fyrra sumar, hafa þeir farið víða um land síðan, en víðast hafa
þeir verið vægir. Barnaveiki hefir gengið á þessu ári hingað og
þangað um alt Vestur- og Norðurland en verið mjög væg. Kíg-
hósti hefir og gengið þetta ár víða um landið.
Nokkur mannalátog slysfarir: Fyrir síðustu áramót
andaðist Friðrik Gíslason úrsmiður og bæjarfulltrúi á Seyðisfirði.
3. jan. Zophóm'as próf. Halldórsson Viðvík í Skagafirði 62 ára.
5. jan. Júlíus Jörgensen verzlunarm. Reykjavík.
15. jan. Andrjes Bjarnason söðlasm. Beykjavík.
18. jan. Gísli Oddsson frá Lokinhömrum.
14. febr. Guðný Sigmundsdóttir kona Eyjólfs bankastjóra á
Seyðisfirði.
25. apr. Pótur Jónsson blikksmiður í Reykjavík.