Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.12.1911, Side 8

Skírnir - 01.12.1911, Side 8
312 Um lífshætti álsins. náði í Leptoceph. Momsii og hélt honum í sjóbúri (sjó- akvarii) í 7 mánuði, og á þeim tíma breyttist hann í lít- inn hafál, og með því var fengin full vissa fyrir því, að getgáta Gills var rétt. Alslirfan fundin. Þetta gaf bendingu um, að vatna- állinn hlyti að eiga sinn »Leptocephal«, eins og frændi hans hafállinn, og hlaut því að fllýta fyrir ráðningu á gát- unni um fjölgun álsins, eins og lika varð raunin á. I Messínasundi er, eins og áður var sagt, mikið um þessar fiskalirfur. Þar eru harðir straumar og hringiður, og berast því mörg smádýr neðan úr djúpinu upp að yfir- borði, og meðal þeirra »Leptocephalarnir«. Á árunum 1889—1892 söfnuðu tveir ítalskir náttúrufræðingar G rassi og Calandru^cio lirfum í sundinu og breyttist ein tegund þeirra, er nefnd hafði verið L. hrevirostris, í álsseiði (»glerál«), auk þess sem þeir fundu hana á ýmsum breytingarstigum, milli »Leptocephals« og gleráls. Með þessu var loks stigið stórt skref í rann- sóknunum á þessu máli. Állinn líktist í þessu sem flestu öðru frændum sínum, og hlaut samkvæmt þessu að hrygna og klekjast út á miklu dýpi. Nú lá í augum uppi, að állinn í Miðjarðarhafslöndun- um hlyti að gjóta í Miðjarðarhafsdjúpunum; sást lirfa hans þar stundum í mergð i mögum tunglfiska, en lítið vita menn nánara um gotsvæðin. Hrygningarsvœði ála ur öðrurn löndum Evrópu. Nú var eftir að vita hvar álar úr öðrum löndum Evrópu hrygndu, og liðu enn allmörg (13—14) ár þangað til menn urðu nokkurs vísari um það. En þá kemur aftur til sögunn- ar danskur náttúrufræðingur, Dr. Jóhannes Schmidt,. sá er staðið hefir fyrir fiskirannsóknunum hér við land undanfarin ár á »Thor«. Á leið til íslands í maí 1904 fekk hann af hendingu eina álslirfu í sílavörpu miðsævis á 1100 m. dýpi, all-langt vestur af sunnanverðum Fær- eyjum. Það var merkilegur fundur, því það var fyrsta álslirfan, er fundist hefir í Atlanzhafi. í ágúst sama ár fann brezkur náttúrufræðingur, Holt, aðra lirfu fyrir

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.