Skírnir - 01.12.1911, Side 42
346
Listin að lengja lífið.1
hvar sem kjör verkamanna hafa verið bætt með auknum
vinnulaunum, þar heflr heilsufarið batnað. Þess vegna er
það ein af aðalhugsjónum jafnaðarmanna að útryðja ýms-
um sjúkdómum ásamt öðrum bágindum með jöfnuði efna-
hagsins, og á því leikur enginn vafi að svo muni verða,
því að reynslan heflr ætíð sýnt, að jafnskjótt og efnahagur
manna batnar, þá bæta þeir úr þeim misfellum, sem mest
liggja í augum uppi, eins og lélegum húsakynnum, óhollu
viðurværi, klæðleysi, hvíldarþörf o. s. frv.
En efnin eru ekki einhlít. Efnin verða mörgum að
óláni og leiða menn í alls konar freistni, til ofdrykkju,
ofáts, leti og sællífis, sem engu síður er heilsuspillandi en
skortur og hvíldarlaust erfiði. Margir fróðir menn vilja
jafnvel fullyrða, að fleiri deyi úr ofáti en sulti í heiminum.
En hvað sem þessu nú líður, þá getur hver stungið
hendinni í eigin barm og við munum öll verða að viður-
kenna — að við gerum okkur sek í því að
rspilla heilsunni á einn og annan hátt,
bæði vísvitandi og af vankunnáttu. 0g
við leggjumst undir höfuð að gera
^mislegt okkur til heilsubóta, til að
styrkja og herða líkamann og þar með
koma í veg fyrir sjúkdóma og lengja líf-
-daga vora.
Það er því full þörf á, að prédikað sé fyrir fólki hvað
gera skuli til að tryggja heilsuna og lengja lífið; engu
minni þörf á að prédika heilsulögmálið en siðalögmálið,
og heilbrigðis-evangelíum þessa lífs engu síður en sælu-
^vangelíum annars lífs.
Hvað eigum við þá að gera til að vernda heilsuna?
Fylgja þeim heilræðum, sem heilsufræðin kennir.
Heilrœðin eru tíu eftir því sem eg veit bezt, eða
með öðrum orðum jafnmörg boðorðum Mósesar, sem við
lærum í kverinu. Og þau eru ekki vandlærðari, því í
rauninni eru þau líka skráð í hjörtum vor mannanna,
svo að jafnvel þeir, sem ekki hafa lært þau, fylgja þeim
meir eða minna ósjálfrátt alveg eins og heiðingjarnir, sem