Skírnir - 01.12.1911, Page 36
340
Listin að lengja lífið.
aldurstakmarkið mun vera 90—100 ára aldurinn fyrir
heilbrigðar manneskjur. — Jafnvel þótt engir sjúkdómar
ásæki menn, kemur ellin smátt og smátt á sínum venju-
lega tíma, og þegar níræðisaldurinn færist yfir, þá er
leitun á þeim öldungum, sem ekki láta ellina koma sér á
kné. —
Hinn frægi bakteríufræðingur Eli Metschnikoff (einn
af þeim ódauðlegu, sem unnið hafa Nóbelsverðlaunin) held-
ur þvi fram, að ellin sé sjúkdómur, sem reyndar verði
ekki fyllilega komið í veg fyrir, en sem sennilega megi
tefja fyrir að ásæki menn.
Hann álítur að flestir eldist og deyi löngu fyrir tím-
ann, og að í framtíðinni muni mega takast að lengja líf
manna að miklum mun.
Það er skoðun Metschnikoffs að bakteríur þær, sem
miljónum saman úir og grúir af í meltingarfærunum,
einkum neðri hluta garnanna, eigi sök á þeim sjúkdómi,
sem vér köllum elli eða ellihrumleik, og þeim sé það að
kenna að menn deyi alt of snemma.
Hann segir að í görnum heilbrigðra manna sé sá
aragrúi af bakteríum, að þriðjungur saurindanna (ef þau
eru þurkuð) sé bakteríur. í öllum meltingarsjúkdómum
eykst þessi bakteriu-urmull um helming eða meira. Bakt-
eriunum fylgja vanalega toxín eða eiturefni, mismunandi
hættuleg líkamanum ef þau komast í blóðið. Fyrst verk-
ar eitrið á garnirnar sjálfar, veiklar þær, veldur vind-
gangi, stundum garnabólgu, og niðurgangi, en stundum
koma sár á slímhúðina, og geta þá bakteríurnar komist
út um líkamann í hin og þessi líffæri, sem þá veiklast
eða jafnvel gjöreyðast. Þannig getur lifrarveiki átt upp-
tök sín, gallblöðruveiki, botnlangabólga, blöðrubólga, líf-
himnubólga o. fi.
Vanalega verkar bakteriueitrið smátt og smátt á blóð-
ið og þar með allan líkamann. Líkaminn hrörnar og elli-
mörkin koma í ljós.
Nú heldur Metschnikoff, að ef það gæti tekist að út-
rýma bakteríumergðinni úr görnunum, og koma í veg