Skírnir - 01.12.1911, Blaðsíða 45
Listin að lengja lifið.
349
svo mikið loftrými sé i herbergjum að um 200 loftfet
komi á hvern sjúkling. I barnaskólum er vanalega látið
nægja að 90—100 loftfet komi á hvert barn, minna þykir
varla boðlegt. Þessu til skýringar má geta þess að víða
í kaupstöðum hér á landi lifa, fjölskyldur — 5—8 manns
— í einni herbergiskytru sem að eins rúmar 200 loftfet
— 8 manneskjur eiga með öðrum orðum að lifa á sama
lofti og annars er ætlað einum sjúklingi. Ef nú helming-
urinn eða fleiri veikjast, þá er þetta dágóður spítali eða
hitt heldur. I svona húsakynnum er krangfeldni mest.
Hér þarf heilbrigðislöggjöfin að láta til sín taka, og von-
andi verður það í framtíðinni hér eins og þegar er orðið
sumstaðar erlendis í stórbæjum.
Hreint loft er fyrir öllu öðru. Hreint loft er fyrsta
heilræðið.
2. heilrœði: Sólslcin.
»Þar sem sólin ekki kemur, þar kemur læknirinn*,
segir útlent máltæki og heflr mikið til síns máls. Það er
líka gömul saga, að fjandinn og alt ilt elski myrkrið og
eigi þar heima. Við þekkjum öll hvað sólskinið fjörgar
og hressir, eins okkur sem flugurnar og fiðrildin. Og
mennirnir lofsyngja líka sólina engu síður en söngfugl-
arnir. Þær kvæðabækur munu vera teljandi sem ekki
láta sólarinnar að góðu getið. Menn hafa tilbeðið sólina
og það að maklegleikum fremur en önnur heimsk skurð-
goð. Reyndar er sólin sumstaðar svo heit og björt, að
hún ekki einungis svæfir og deyfir, heldur jafnvel brenn-
ir og tortímir lífiuu, en þessa gætir ekki hjá okkur norð-
urlandabúum. Við höfum ekki nema gott að segja af
sólinni. Hjá okkur er hún ekki skaðleg öðrum kvikind-
um, en þeim, sem okkur má einu gilda um, nfl. bakter-
íunum, ef kvikindi skyldi kalla. Miljónir af bakteríum
láta líf sitt ef sólin hellir geislum sínum yfir þær dálitla
stund. Sólin sótthreinsar með öðrum orðum á við hin
megnustu sóttvarnarlyf.
Síðan mennirnir fóru að búa í húsum, hafa þeir farið