Skírnir - 01.12.1911, Blaðsíða 74
Ætt Döllu biskupsfrúar.
Dr. Björn Magnússon Ólsen prófessor hefir í ritgerð sinni um
Landnámu og Laxdæla sögu1) ritað um rugling þann og missagnir,
er orðið hafa í heimildarritum sögu vorrar um börn og afkomendur
þeirra AuSunar skökuls landnámsmanns á Auðunarstöðum í Víðidal
og Önundar trófótar landnámsmanns í Kaldbak á Ströndum. Er
börnura þeirra blandað þannig saman, að Asgeir »æSikollur« er
jmist nefndur sonur AuSunar2) eða sonur Önundar3) og Þorgrímur
hærukollur er sumstaðar taliun sonur AuSunar4 5), en annarstaðar
sonur Önundar6).
Rugling þenna hefir höf. Grettis sögu viljað leiðrétta á þann
hátt, að láta AuSun skökul eiga fyrir kouu ekkju Önundar trófótar,
er hann nefnir Þórdísi Þorgrímsdóttur frá Núpi í Miðfirði6) og segir,
að sonur þeirra hafi veriS Þorgrímur hærukollur, en sonur hennar
og AuSunar Ásgeir »at Ásgeirsá«7), er hann nefnir á öðrum stað
»æðikoll«8).
Dr. Guðbrandur Vigfússon vildi helzt hallast að þeirri skoðun,
að þeir Þorgrímur og Ásgeir »æðikollur«, sem hann heldur að só
') Árh. f. nord. Old. og Hist. 1908, bls. 211—221, sbr. 232.
2) Laxd.3 140, Fms. II, 23, Flat. I, 309, Biskupaættir (ísl.11, 357,
Sturl.2 II, 498), sbr. Fms. III, 199, Flat. I, 416. í registri við Landnámu
(Kh. 1843, bls. 396, og Kh. 1900, bls. 328) er Ásgeir „æðikollur11 „at
Ásgeirsá11 talinn sonur Auðunar skökuls.
s) Hb. 52, Stb. 176, sbr. ísl.2 I, 157.
4) Laxd.s 140, Fms. II, 23 og Bisk.ætt.
5) Hb. 52. Stb. 176, sbr. ísl.2 I, 157, Grt.s 26.
6) Kona Önundar var Æsa Ófeigsdóttir, Einarssonar, Ölvissonar
barnakarls (Grt.8 25, sbr. 6, 8—9), og mun hún bafa verið móðir barna
hans, þvi að alt er mjög óvist um þessa Þórdísi, sbr. Árb. f. nord. Old. og
Hist. 1908, bls. 212—214, sbr. 232.
7) Grt.3 26—27.
8) s. r. 101.