Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1911, Page 10

Skírnir - 01.12.1911, Page 10
314 Um lifshætti álsins. til við brúnina á grunni því, er liggur út frá Frakklandi og Bretlandseyjum. Nær löndum getur hrygningarsvæði álsins ekki verið, því að álalirfur hafa hvergi fundist nær löndum en þar, þrátt fyrir allar þær kannanir með síla- vörpu og öðrum veiðiáhöldum, er gerðar hafa verið á síðari árum. — Síðan hefir Schmidt farið (á »Thor«) alla leið suður í Miðjarðarhaf og einnig fundið hrygningarsvæði lyrir vestan og sunnan Pýreneaskaga. Árið 1910 fór fiskimálefnastjóri Norðmanna, Dr. J o - han Hjort, rannsóknarferð um norðanvert Atlanzhaf milli Evrópu og Nýfundnalands, á skipinu »Michael Sars«. Fann hann þá strjáling af álalirfum miklu lengra úti í hafi, en Schmidt hafði áður fundið, jafnvel fyrir sunnan og vestan Azóreyjar, og þar voru þær mikið smærri en þær, er áður höfðu fundist. Lítur því út fyrir að hrygn- ingarsvæðið sé þar úti í miðju Atlantzhafi. Skilyrði hrygningarinnar. S c h m i d t hefir fundið að skilyrði þess, að állinn geti hrygnt, eru þau, að dýp- ið sé að minsta kosti 1000 m., hitinn á því dýpi ekki undir 7° C., og sjórinn fullsaltur úthafssjór (seltan 35,a%0). Enn óþekt atriði. Loksins er nú búið að fá þekkingu á mörgu um hrygningu álsins, er áður var í myrkrum hulið. Þó er ýmislegt eftir að vita ennþá. Enn vita menn t. d. ekki nákvæmlega hvar eða hvenær állinn gýt- ur (líklega að vetrinum), né hvernig, hvort það er við yfirborð, miðsævis eða við botn. Líklegt er að það sé miðsævis, eða við yfirborð, því að egg álategunda (óvíst hverra) hafa fundist þar. Eins er mönnum líka ókunnugt um, hve lengi eggin eru að klekjast út, og um fyrstu vaxtarstig lirfunnar.1) Alslirfan og hreyting hennar í glerál. Álslirfan er ‘) Likt er einnig ástatt um annan alþektan fisk, kákarlinn. Ennþá vita menn ekkert um, hvernig liann kemur í heiminn, hvort það •er sem egg eða ungi, né heldur hvar það er. Hann dregur sig út i -djúpin og hættir yfirleitt að veiðast i ágúst og er því líklegt að hann .gjóti (verpi) á 2—300 faðma dýpi. Smáhákarl (got) gengur inn i firði •eftir jól eða nýár, en smærri fiskar en 2—4 fet á lengd sjást aldrei.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.