Skírnir - 01.12.1911, Side 22
326
Tungan.
náttúrunnar, hin óbrotlegu lögmál hennar. Vér gætum
þess ekki, að verða þeim samtaka, og það er þó aðalskil-
yrði fyrir allri framför og farsæld, því eftir því, sem oss
tekst betur að samræma verk vor og athafnir við hin
ráðandi lögmál lífs og dauða, því varanlegri verða þau,
og afleiðingaríkari fyrir þá hugsjón er þau eiga að styðja,
því þá vinna þessi lögmál með oss, að fullkomnun henn-
ar, en vinni þau móti oss, eða réttara sagt vér á móti
þeim, þá þurka þau snarlega út allan árangur verka
vorra, hversu góður sem oss sýndist tilgangurinn vera,
eða réttmætur. — Þetta hygg eg sé sá fullkomnasti mæli-
kvarði, sem vér getum mælt með mannleg verk og mál-
efni, sá samnefnari, sem flest sannleiksbrot ganga upp í.
Og hvað kennir þetta oss svo urn tungu vora? Það,
að hún er ekki og getur ekki verið eilíf eða óbreytiieg.
Hún er ein af augnabliksmyndunum, eins og sjálfir vér,
þjóð vor og land vort. Það kennir oss, að annaðhvort
liggur fyrir tungunni, að hverfa snarlega af myndaspjaldi
tilverunnar, eða hún verður að hlýða þessu volduga lög-
máli, að vaxa og gróa, en það hefir aftur í för með sér
breytingu, endurnýjun og afmáun. Kyrstæði tungu er
sama sem dauði hennar, dauði þess hæfileika að tákna
lifandi og vaxandi sálarlíf, hugsjónir og verknað; dauða
þess hæfileika að þjóna nýjum athöfnum nýrra kynslóða.
Það er talið svo, að ætíð séu þrjár kynslóðir manna
uppi í senn: gamalmennin, sem eru að lúka dagsverkinu,
eða hafa lokið því; miðaldramennirnir, sem eru önnum
kafnir við aðalstörf lífs síns, og æskan, sem er að búa
sig til verka. Allir rosknir menn hljóta að veita eftir-
tekt þeim mismun sem ætíð er milli nær þvi alls hugs-
uuarháttar kynslóðanna. Nýjar útsýnishæðir rísa fram-
undan úr útsæ tilverunpar; qýjar skoðanir ryðja sér til
rúms með ári hverju, og festa fyrst og fremst rætur í
huga og meðvitund æskulýðsins. Nýr verknaður lærist,
ög annar hverfur og gleymist, og með honum þær orð-
myndir, er við hann voru tengdar, en hinn nýi verknað-
ur krefst nýrra táknana, og því örara sem þessar breyt-