Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1911, Page 24

Skírnir - 01.12.1911, Page 24
328 Tungan. nýjum myndum, en aðrar gamlar að deyja út; myndir sem þjóðarandinn vex frá. I raun og veru talar hver öld, og jafnvel hver kyn- slóð, að mörgu leyti, sína sérstöku tungu, og það svo, að vér finnum all-glöggan mun á málfæri sjötugs manns og tvítugs, sem uppi eru í senn, því hinn yngri hefir tileink- að sér ný hugtök, nýjan verknað og áhöld, sem krefjast nýrra táknana og talshátta, og enginn lifir heldur svo til gamals aldurs, að hann hafi ekki á ýmsan hátt breytt málfæri sínu frá því er hann var ungur. Auk þess fylgir hverri atvinnugrein eða starfsgrein all-mikill fjöldi sér- stakra orða, hugtaka og setninga, sem aðrir atvinnurek- endur margoft ekki skilja. Sjómaðurinn t. d. þarf að tákna mikinn fjölda hugtaka, verknaðar og áhalda, sem fjallabúinn alls ekki skilur. Þetta sýnir að jafnvel sjálft hugtakið sérstök þjóðtunga hefir reikul takmörk, þegar betur er að gáð. Það sýnir líka, hve óhugsandi það ert að tunga, sem töluð er af, starfandi framsóknarþjóð, geti storknað í ævarandi formi, eða megi gera það. Enginn getur kynst þeim hugtökum, eða tileinkað sér þær hug- sjónir, sem tunga hans ekki getur táknað. — Allir geta séð hve óhugsandi það er, að iðnaðar og siglingaþjóð í nútima stíl, geti komist af með sömu tungu, sem hún tal- aði þá, er hún var hirðingjaþjóð. — En þrátt fyrir þetta — eða máske réttara sagt, ein- mitt vegna þessa — þá hefir hver þjóðtunga sitt sérstaka eðli, sín eigin lög, sitt ættarmót, mér liggur við að segja sitt skapferli, eða lyndiseinkunn og hugbiæ, sem er ætt- gengt og kynfast, og ólíkt öllum öðrum tungum. En eins og það er eðlilegt og sjálfsagt lögmál, að sonurinn aldrei verður hið sama sem faðirinn, hversu náin sem líkingin er og kynfestan sterk; og eins og það er víst, að sonur- inn hefir aldrei alveg sömu viðfangsefni og lífsskilyrði sem faðirinn, eins er það víst og sjálfsagt, að ætterni og kynfesta tungunnar verður að hlýða sömu lögum. Af þessu leiðir, að það er einungis það, sem eg hefi leyft mér að kalla ættarmót tungunnar, sem vér getum varð-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.