Skírnir - 01.12.1911, Page 28
332
Tungan.
og kryplingar flyttu þar inn, sem fullbygt er fyrir og
fullræktað, svo að heilbrigðir og lífsþróttugir frumbyggjar
yrðu að hröklast undan, en einmitt slíkt á sér stað um
mikinn hluta þeirra orða og talshátta, sem laumast inn i
tungu vora meðal ómentaðra fiskimanna og iðnaðarmanna,
eða um eldhússdyrnar i kaupstöðum og viðskiftabækur
hálf- eða alútlendra verzlana, að ógleymdum auglýsingun-
um og illa þýddu sögurusli, hér heima eða vestur í
Ameríku. Það er gegn þessum innflutningi, sem vér sér-
staklega verðum að gjalda varhuga, og reisa skorður, því
fyrri en oss varir hefir athugalaus alþýða veitt þeim inn-
borinna réttítungunni, og næsta kynslóð hefir gleymt ætterni
þeirra og uppruna. Af vísinda-orðum, sem mentaðir menn
nota í ræðu og riti, stafar tungunni þar á móti alls engin
hætta, því bæði skipa þau autt rúm í tungunni, nema
ónumið land, og svo eru það siðaðir innflytjendur og lög-
hlýðnir, sem annaðhvort smám saman beygja sig undir
lögmál tunguDnar, eins og svo afar-mikill fjöldi eldri inn-
flytjenda, eða þeir draga sig i hlé aftur innan skamms,
ef samþýðingin mishepnast. Það verður því aldrei hinn
sann-mentaði hluti manna, sem spillir tungunni, jafnvel
hversu mikið af erlendum orðum sem þeir nota í ræðu
og riti, heldur einmitt hinn þekkingarsnauði hlutinn, þeir
sem í raun og veru enga tungu kunna svo, að þeir skynji
lög hennar, né heldur þekkja útlend orð frá innlendum.
Þess vegna er glögg þekking á tungunni, skilningur á
lögum hennar og stofnum fyrsta og óhjákvæmilegasta
skilyrðið, ekki einungis fyrir varðveizlu tungunnar og
réttri auðgun hennar, bæði af frumstofnunum og með inn-
flutningi, heldur og fyrir þeim ræktarhug, sem einn megn-
ar að varðveita og umbæta hverskonar arfleifðir . kynslóð
eftir kynslóð, öld eftir öld.
Eins og ræktarhugur vor til forntungunnar er sama
eðlis sem ræktarhugur vor til forfeðranna og foreldris
vors, eins verður ræktarhugur vor til nýyrðanna og ný-
myndana allra í tungunni, og umhyggja vor fyrir þeim,
að vera sama eðlis sem rækt og umönnun vor fyrir börn-