Skírnir - 01.12.1911, Qupperneq 69
Lögmannsdæmi Eggerts Ólafssonar.
373
Að vísu virðist það ekkert undarlegt, þó Eggert Olafs-
syni, slíkurn ágætismanni sem hann var, hefði verið
veitt embætti óbeðið, en hitt heflr mér ávalt fundist dá-
lítíð einkennilegt, að hann, sem aldrei hafði lögspeki stund-
að, eða tekið próf í henni, skyldi fá lögmannsdæmi, yflr-
dómaraembætti, því eftir að lögfræðispróf hafði verið sett á
stofn við háskólann með tilskipun lO.febrúar 1736varþaðorð-
in föst venja, að engir aðrir en lögprófaðir menn fengju yfír-
dómaraembætti. Þegar Eggert varð varalögmaður, voru
líka báðir lögmennirnir, Sveinn Sölvason og Björn Mark-
ússon, prófaðir lögfræðingar með 1. einkunn, og eins hinn vara-
lögmaðurinn Jón Olafsson í Víðidalstungu, svo þessi skip-
un stingur allmjög í stúf. Það sýnir sig líka við nánari
rannsókn, að Eggert átti að leysa nokkurs konar lagapróf
af hendi, og að embættið var ekki veitt honum óbeðið,
svo að frásögnin um þetta hjá Birni prófasti er gersam-
lega röng, þó óskiljanlegt sé hvernig honum heflr orðið
það á, að fara þannig með rangt mál; en óviljandi hefir
hann það gjört, því bæði var hann svo vandaður maður,
að hann hefði aldrei farið að skrökva því upp, og svO'
voru þá ,þegar æviminningin var prentuð, margir menn á
lífi, sem hlutu að vita hið gagnstæða, að það hefði verið
meira en bíræfið að gera slíkt.
Arið 1758 varð fyrnefndur Jón Olafsson varalögmað-
ur hjá Birni Markússyni lögmanni Sunnan og Austan á
Islandi, en þegar Olafur Stephánsson lét af varalögmanns-
embætti Norðan og Vestan, er hann tók við amtmannsem-
bætti eftir Magnús Gíslason tengdaföður sinn látinn, 1766,
sótti Jón um það embætti, enda var hann betur settur
til þess að gegna þvi, er hann bjó í Víðidalstungu. Með
því að það var talið sjálfsagt, að hann fengi það embætti,
sem og varð, urðu margir til þess að sækja um varalög-
mannsdæmið Sunnan og Austan, þar á meðal Vigfús
Scheving, er síðar var langa stund sýslumaður í Skaga-
fjarðarsýslu.1) Þáverandi stiftamtmaður, greifi Rantzau,
*) Vigfús, sem var löglærður maður, sótti þrisvar um varalög-