Skírnir - 01.12.1911, Blaðsíða 79
Ætt Döllu biskupsfrúar.
383-
verið við þau riðinn. En það tel eg mjög vafasamt, að þau hafi
þá verið orðin hjón (1032). Dalla hefir eigi verið fædd fyr en um 1010'
—1015, og af barnsaldri hefir hún veriö komin, þáer Isleifur bað henn-
ar, því að annars hefði faðir hennar tæplega verið að tala um það,
hvað hennar ráð hefðu mikils mátt sín »h ó r« til. Yar hún hin
vænlegasta kona og góður kvenkostur, og hefir ísleifur biskup
farið þangað í kvonbænum eftir tilvísun frænda sinna, því að þeir
vildu styrkja hann með kvonfangi, en hann var maður fólítill1).
Gizur, sonur þeirra ísleifs, var fertugur, þá er hann vígðist 10822)
og því fæddur um 1042, en hvort hatin hefir verið elztur sona þeirra
verður eigi séð, því að þótt hann sé taiinn þeirra fyrstur, þá getur það
eins verið af því, að hann varð þeirra göfgastur, og af því, að haun
var þeirra elztur. Isleifur var fæddur um 1006, því að hann var
fimtugur, þá er hann tók biskupsvígslu 10563). Hann var á unga
aldri í skóla á Saxlandi, og í Noregi var hann á dögum Ólafs digra
Haraldssonar, og er það mjög óvíst, að hann hafi verið kominn út
hingað og kvongaður, þá er Grettir var veginn. Höf. Grettis sögu, sem
vill gera Gretti alt til ágætis, hefir að sjálfsögðu þótt það mikils-
vert, að láta jafnágætan mann og ísleif vera viðriðinn eftirmál
hans, og þar sem honum hefir verið kunnug frændsemi þeirra
Grettis og Þorvalds og það, að kona ísleifs var dóttir Þorvalds, þá
var það mjög eðlilegt, að hann léti þá Isleif og Þorvald vera við
eftirmál Grettis, en tímatal Grettis sögu er víða mjög ruglað, svo
að ekki verður á því bygt. Dalla lifði mann sinn, er andaðist 1080,
og bjó hún á sínum hluta landsins í Skálholti, og virðist hafa lifað
mann sinn nokkur ár4). Er ólíklegt, að hún hefði haldið búi sínu
áfram, ef hún hefði verið fædd miklu fyr en áður segir, því að þá
hefði hún veriö oröin fjörgömul, og finst mór sennilegast, að hún
hafi fæðst, eins og áður segir, um 1010—1015 og gifst um 1035—
1040. — Þorvaldur Asgeirsson virðist vera dáinn fyrir 1050, því að
um það leyti bjó Styrmir Þorgeirsson á Ásgeirsá og hafði goöorð5).
Dr. B. M. Olsen segist ekki þekkja ætt hans'þ, en hann hefir vafa-
laust veriö bróðursonur Kolfinnu, konu Þorvalds, og sonur Þorgeirs
Galtasonar. Var sonur Styrmis Hallur, sem einnig er getið í Banda-
*) Flat. II, 141, sbr. Bisk. I, 54.
*) Bisk. I, 29.
*) Isl.bók c. 9, Bisk. I, 64.
4) Sbr. Bisk. I, 67.
6) Band.6 1, 32.
ð) T. B. II, 27.