Skírnir - 01.12.1913, Blaðsíða 32
.320
Nokkrar athugasemdir.
■uin, þvert ofan í handritin? Hjer stiður hvor lögbókin
aðra, þvi að það getur varla verið af hendingu sprottið,
að þær hafa, allar þrjár, konungserfðir fljettaðar inn
í Kristindómsbálk eftir vitnisburði handritanna.
Að þvi er Járnsíðu snertir, virðist E. A. halda því
fram, að ef konungserfðirnar hafl fllgt Járnsíðu frá upp-
hafi, þá hljóti þær að hafa verið lögleiddar hjer »1272
eða 1273, er Járnsíða að frádregnurn þingfararbálki var í
lög leidd<r. Enn þá sje óskiljanlegt, hvers vegna hin
niju norsku ríkiserfðalög, er samþikt vóru í júlí 1273, hafi
ekki verið tekin í lögbókina, heldur gömlu ríkiserfðalögin
frá 1260. Höf. ríður hjer í bága við beinan og ótvíræðan
vitnisburð Arna biskups sögu, ágætrar heimildar, og bestu
islenskra annála, sem ber saman um, að árið 1271 hafl
verið lögtekinn Þingfararbálkur lögbókarinnar og 2 kapí-
tular í erfðabálki, árið 1272 hafi öll lögbókin, sem ójátað
var, verið samþikt, að undanskildum erfðabálki, og loks
hafi erfðabálkur verið samþiktur 1273 að undanskildum
þeim 2 kapítulum, sem játað var áður (1271).1 Nú eru
konungserfðirnar í Járnsíðu ekki partur af erfðabálki,
heldur standa í Kristindómsbálki. Þær hljóta því að hafa
verið lögteknar árið 1272, enn ekki 1273. Enn það ár,
1272, vóru ríkiserfðalögin frá 1260 í fullu gildi um allan
Noreg, og gat ekki komið til neinna raála að lögleiða önn-
ur lög um það efni á íslandi. Rjett er það, að ríkiserfða-
kafli Járnsíðu kemur að forminu til fram sem fræð-
andi skírsla um hvaða reglur gildi um ríkiserfðir i Nor-
egi, því að lögbókin tekur upp óbreitt ríkiserfðalögin frá
1260, og eru þar í íms orðatiltæki, sem eiga við Noreg,
enn geta ekki átt við um ísland. Enn þrátt firir þetta er
engin ástæða til að rengja, að íslendingar hafi árið 1272
samþikt e f n i þessa kafla, erfðaskipunina, reglurnar um
konungskosning, þegar enginn óðalborinn erfingi er til,
eiðana, o. s. frv. Lík ónákvæmni kemur víðar firir i
Járnsíðu, sem er mjög hroðvirknislega samin. T. d. tek-
‘) Bisk. I 688—690 og 695. bls. Annales vetustissimi og Konungs-
annáll við árin 1271—1273.