Skírnir - 01.12.1913, Blaðsíða 95
Útlendar fréttir.
865-
í taumana af Tyrkjum til þess að hindra, að gert væri með öllu
útaf við íbúa þe88 landsvæðis, sem um væri að ræða, er ekkert
hefðu til saka unnið annað en það, að vera búsettir vestan línunn
ar frá Enos til Midía, en þeim hefði ekki verið vært undir yfirráð-
um Búlgara. Auk þess væri Tyrkjum lífsnauðsyn að eiga svo mikið
land á Evrópuströudinni að í því væri einhver trygging fyrir vörn
höfuðstaðarins og Dardanellasundsius. Þetta svar Tyrkja vakti um
stund allmikil mótmæli og var búist við, að stórveldin létu þeim
ekki haldast uppi að ganga á gerðar sættir. En svo hefir þó ekki
reynst. Tyrkir drógu að sór austan frá Asíu meira og meira lið,
er þeir söfnuðu samau við Adríanópel. Höfðu þeir þar yfir 30(b
þús. hermanna og kváðust ekki víkja þaðan fyrir öðru en vopnum.
Þeir báru þungar sakir á Búlgara fyrir framferði þeirra þar og í
héraðinu umhverfis þann tíma, sem þeir höfðu haft þar yfirráðin.
Skoruðu þeir á stórveldin, ef þau ekki tryðu þeim sögum, að senda
nefnd manna til þess að kynna sér ástandið. Borgararnir í Kon-
stantínópel hafa staðfest þessar sógur Tyrkja af grimdarverkum Búlg-
ara. Kusu þeir nefnd manna, sem skipuð var fulltrúum bæði frá
kristnum mönnum, Gyðingum og Múhameðstrúarmönnum, sem í
borginni búa, og sendu þá nefnd til höfuðborga stórveldanna með
þá beiðni, að þeir fái að vera undir stjórn Tyrkja, en að borgin
verði ekki lögð undir veldi Búlgara. Framsögumaður þessarar nefnd-
ar hefir verið grískur maður, Orphanides að nafni, sem er þing-
maður í tyrkneska þinginu. Segir nefndin hroðasögur af framferði
Búlgara meðan þeir höfðu yfirráðin í Adri'anópel. Þeir höfðu leikið
sér að því að drepa þar á götunum bæði menn, konur og börn, og
borgina sögðu nefndarmenn vera orðna eins og rústarhaug eftir þær
aðfarir.
Nú er svo komið, að Búlgarar búast ekki lengur við, að stór-
veldin skerist f leikinn milli þeirra og Tyrkja, og eru nú farnir að
semja við Tyrki á eigin hönd. Hafa þeir sent fulltrúa sína til
Konstantínópel til þeirra samninga og er nú sagt, að þeir bjóði
Tyrkjum Adríanópel mest alla, með ýmsum frekari skilyrðum, og
líklegast er, að Tyrkir haldi öllu landinu vestur að Maritsafljótinu,
er rennur í gegnum Adríanópel- En ekki er útgert um þetta enn
sem komið er.
Um Albaníu er það nú ákveöið, að hún eigi að verða fursta-
dæmi, og á það að verða komið í kring innan næstkomandi janúar-
loka. Nefnd, sem stórveldin skipa og fulltrúi frá Albaníu á að fá