Skírnir - 01.12.1913, Blaðsíða 75
Ýmsar skoðanir á eðli rúmsins.
363
■orðnar helmingi minni en þær eru nú, mundum vér aldrei
að eilífu fá neitt um það að vita, og ekkert fremur þó
að þær yrðu ekki orðnar nema miljónasti partur af því
sem þær eru nú. Myndirnar í speglinum mundu svo sem
telja sitt rúm óendanlegt engu síður en vér. Fjarlægðin
inn til miðjunnar á radius kúlunnar mundi hjá þeim vera
»óendanlega löng«. Þar er nefnilega »brenniflötur« kúl-
unnar svonefndur, og fyrir utan hann eru allar myndirn-
ar og komast aldrei að honum. Vegna »óendanleikans«
gæti allur heimur okkar vel verið eins og ofurlítið úr, sem
guð almáttugur gengi með í vestisvasanum.
Lýsingin á þvi sem eg kalla eðli rúms vors, eins og
vér hugsum oss það, er að miklu leyti getin í frumsetn-
ingum Evkleidesar. Eg skal nú ekki fara langt út í þá
sálma, en þó taka fram nokkur atriði.
Vér segjum að þrjú séu stig rúms vors. Með því er
eiginlega meint, að til þess að segja til hvar punktur sé
í rúminu, þurfl þrjú mið. Þegar sjómaðurinn viil segja
til þess, hvar hann hafi verið að fiski, tekur hann til tvö
mið og getur þá hver sem miðin þekkir, farið nákvæm-
lega á sömu stöðvar. Segi hann t. d. að Gróttuviti hafi
borið við Keili og Engeyjarviti við Vífilsfell, hefir hann
verið þar sem línan gegn um Gróttuvita og Keili sker
línuna gegnum Engeyjarvita og Vífilsfell. Slík mið
eru einnig lengd og breidd á jörðinni. Reykjavík er hér
um bil á 64. stigi norðurbreiddar og 22. lengdarstigi vest-
ur frá' Greenwich. Þegar sjómaðurinn á skipinu hefir
fundið lengdarstig það og breiddarstig 3em hann er stadd-
ur á, getur hann bent á punkt á kortinu og sagt: »þarna
er eg«. Tvö mið duga sjómanninum, því að hann er
bundinn við hafflötinn; en fuglinn i loftinu þyrfti þrjú
mið. Honum dygði ekki að vita lengdar- og breiddarstig,
hann þyrfti einnig að vita hæð sína yfir hafflötinn. Til
þess að segja til hvar punktur sé í herberginu mínu, má t.
d. segja að hann sé 1 m. frá austurvegg, l'/2 m.frá suður
vegg og 2V2 m. frá gólfi. Þá er full-greinilega til hans sagt.
Frumsetningar Evkleidesar eru svo gersamlega sam-
grónar meðvitund vorri og hugsun, að engum manni kem-