Gefn - 01.01.1871, Side 7

Gefn - 01.01.1871, Side 7
7 2, þannig að sérplægni og antælisskapur einstakra manna þvíngar eða tælir kjósendurna íueð ýmsu móti, med fortölum, slægð og »góðgjörðum«. |>etta hyggjum vér muni allstaðar við gángast, eins hjá oss sem annarstaðar; persónuleg hlut- föll spila þráfaldlega undir, og einn lítur opt svo eða svo á eitt mál af því »vinur hans« heíir þá eða þá skoðun. J>etta er ófrelsi, ánauð, þrældómur, sem stjórnirnar leggja ekki á, heldur þjóðirnar. Hversu margir eru ekki kosnir þannig, sem gæla og gala fyrir þjóðinni á allar lundir til þess að verða sjálfir álitnir sem þjóðlegastir! — Annars væri það hörmulegt fyrir laud og lýð, ef það skyldi venjast á að þeir verði kosnir til þíngsetu sem lítið eða ekkert vit hafa á málefnunum, eða kann ske ekki nema einu einasta, og sem ekki eru færir um annað en að vera hrifnir af sjálfum sér og smjaðra fyrir þjóðinni, henni til eintóms niðurdreps og minnkunar. En þetta gerist raunar miklu víðar en hjá oss. J>að er eins og menn haldi að ekki þurfi nema heilbrigða skynseini til að vera þíngmaður, enga þekkíngu og engan lærdóm — eða menn lialda að þetta muni allt koma af sjálfu sér eins og guðleg opinberan! Vér sögðum raunar í inngánginum til þessa rits, að ekki þyrfti nema heilbrigða skynsemi til að »pólitíséra«, en það var ekki bókstaflega meint, eins og hverr maður getur séð. það er nú eins með alþíng hjá okkur eins og með þíng anuarstaðar, að þess konar stofnanir eru mikið góðar og tímanum samboðnar; en nú er af nýja brumið, nú erum vér orðnir vanir þeim. í samanburði við hið fyrra ástand, þegar enginn mátti tala neitt né hafa neina meiníngu, eru þær frelsi, og í fyrstunni fundum vér ekki annað en þjóð- unum væri sleppt lausum eins og folum úr hesthúsi á vor- degi. En í rauninni er þetta ástand ekki hót betra en hver önnur góð stjórn, í hverju formí sem hún er — já, þessi þjóðstjórn getur orðið helmíngi verri en önnur harðstjórn, þegar þeir verða ofan á sem ekkert vit hafa á málunum, og eru fleiri en eitt dæmi til þess. Vér álítum alþíng öld-

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.