Gefn - 01.01.1871, Blaðsíða 79
79
og þaðan austur eptir í vík nokkra, er þeir kölluðu Náðarvík
(Mercy Bay).
Nú bjuggust menn til vetrarsetu enn á ný; skipinu var
óhætt, en land var enn kaldara og harðara, því það var þó
enti norðar en hitt. í aprílmánuði fór Mac Clúre á ækjum
yfir til Melville-eyjar, ef liann kynni að hitfa menn fyrir
og gæti fengið hjálp í nauðum sínum, en þar var enginn.
J>að var nærri því farið eins og fór fyrir Franklín. Mac
Clúre snéri aptur við svo búið og lá nú ekkert annað fyrir
en að vfirgefa skipið og fara fótgánganði suður eptir. f>á
vildi svo heppilega til að menn komu frá Kellett, er stýrði
»Kesolute« og var kominn inn í Melville-höfn. Kellett tók
við Mac Clúre og mönnum hans, en krafðist þess að »In-
vestigator« væri látinn iiggja eptir, því hann væri ófær til
sjóferða eptir ísgánginn. Yoru síðan öll faung flutt á land
og skipið ramlega strengjað niður, merkisblæjur upp dregn-
ar og síðan frá horfið; þetta var 3. júní 1853, og liggur
»Investigator« þar enn í dag í Náðarvík. 17. júní fundu
þeir austanleitarmenn og fengu hjá þeim hjúkrun og beina;
en sumarið 1853 var svo hrásiagalegt ogkalt, að þeirkom-
ust ekki yfir í Baffínsflóann og urðu þeir Kellet og Mac
Clúre því að sitja þar enn einn vetur. Loksins komust þeir
heim um sumarið eptir og fengu tíu þúsund puiida verðlaun
af Englastjórn. Ameríku menn höfðu ekki sýnt minni dugn-
að en Englar í Franklínsleitunum; einhver hin frægasta
norðurför var sú erKane fór'), hann komst að 82. mælistigi
rúmlega og hélt að þaðan væri auður sjór norður úr; þar
varð hann að skilja skip sitt eptir og komst á bátum til
Upernavik á Grænlandi. Hayes hét sá er með honum var;
hann fór aptur 1860—62 í norðurleitir og komst nokkuð
lengra, en þó ekki þángað sem menn héldu auðan sjó vera.
) Hann var fæddur 1822 íFíladelfíu, og ferðaðist rajög víða bæði
um Asíu og Afríku; bann er frægastur fyrir þessa norðurför
og að hafa seð „Möndulshaf11. Hann dó í Havanna 1857.