Gefn - 01.01.1871, Blaðsíða 65
65
eins tullan rétt á að vera nefndir fyrstir fundarmenn Ameríku
eins og Herschel er nefndur fyrir Úranus eða allir Norður-
farar fyrir þeirra landafundi, því það er enn ekkert meira
practiskt gagn orðið að þeirra uppgötvunum en af okkar
forfeðra — og vér getum jafn vel sagt að uppgötvanir Eiríks
og Leifs hafi þegar borið ávöxt og það fyrir krapt sjálfra
Islendínga Sveinbjarnar Egilssonar og Finns Magnússonar,
þó Rafn væri sá sem setti það ígáng. Allraþessara manna
verk metum vér jafnt og gefum »suum cuique«. En út-
lendir menn hirða ekkert um þessa menn né jpormóð Torfason
né Björn á Skarðsá; heldur segir Alexander Húmboldt, að
engir nema danskir og norskir lærdómsmenn geti upplýst
ménn um þessar uppgötvanir — og þó hafa engir gert
það nema Islendíngar einir; og þó var Alexander Húmboldt
vitrastur allra manna1). J>að er raunar satt, að Evrópa
hafði ekkert gagn af landafundi Islendínga um ár 1000;
]>aö var fyrst 500 árum þaðan frá að Ameríka fannst aptur
og þá komu fvrst til norðurheimskautsferðirnar, og uppruna-
.') þetta er að sínu leyti eins og þegar JacobGrimm óskar(sein-
ast í formálanum í'yrir „Reclitsaltertliúmer“, að bókin komist í
hendur einhverjum lærðum D ana eður Svía — eins og enginn
Norðmaður eða Islendíngur fáist við lærdóm, og eins og öll
norræn lögvísi sé ekki frá Islendíngum — og eins og nolckurt
annað land sé auðugra að fornum venjum en Island. En enginn
lieíir nokkurn tíma verið hræddur við það, að íyrirlíta mann eða
skamma mann út, einúngis ef hann var eða er Islendíngur. —
Menn komast raunar aldrei svo að orði, að Italir hafi fundið
Ameríku, þó Kólúmbus væri ítalskur að ætt, því það voru Spán-
verjar sem bjuggu hann út; en hvað Leif snertir, þá voru Is-
lendíngar ekkert háðir Nordmönnum; og hvað liitt snertir, þá
er þar um ekkert að tala, því maður verður aldrei annað en
maður sjálfur. f bók sinni um Norðurlönd í fornöld (bls. 84)
kallar Weinhold Eggert og Bjarna „danska Islandsfara“; ef
vér eptir þessu skyldum svara hverjum sem spyrði oss hvaða
landsmenn vér værum og segðum að vér værum danskir, þá
yrði það skrítin Geographía, og allir mundu víst ekki láta sér
lynda með það svar.
5