Gefn - 01.01.1871, Blaðsíða 90
90
kveða þegar margra manna líf er í veði): þess vegna lijálp-
aði Napóleon Italíu, þess vegna sendi liann lið yfir til
Mexíkó, þess vegna lét hann Frakka berjast á Krim; þess
vegna liafði hann gripasýnínguna miklu og einmitt þess vegna
hóf hann nú þetta stríð; því Frökkum hefir enn ekki getað orðið
haldið í skefjum nema með einhverju þess konar stórræði og
það er það eina sem kemur þeim til að hænast að stjórnar-
anum; en þegar þeir dofna, þá byrjar aptur upphlaupsandinn
að hreifa sér og þá má stjórnin alltaf til að finna upp á
einhverju nvju glíngri. Svonavar líka með Napóleon fvrsta:
einmitt með hinu sama ráði hélt hann valdinu yfir Frakk-
landi; hann var meiri herforíngi enNapóleon þriðji, eins og
hann og lifði á allt annari öld; en hann var öldúngis ekki
meiri stjórnari1) — ef haun annars hefir getað jafnast við
hann að stjórnkænsku. þ>ar sem >þjóðstjórnin« þess vegna
hefir ætlað að gera keisaranum smán með opinberan leynd-
arskjalanna, þá hefir hún einmitt kastað smán yfir alla
Frakka. Að Napóleon gaf ættíngjum sínum fé, og mörgum
styrktarmönnum keisaradæmisins, er ekld meir en hverr skyn-
samur maður getur skilið. Vér tökum það upp aptur enn.
síðan her Napóleons féll, hetír enginn meiri háttar maður
komið fram í Frakklandi og mun ekki koma. J>arna höfum
vér »þjóðfrelsismennina« og »frelsishetjurnar«, af'komendur
þeirra sem aldrei hafa getað unað við neiua stjórn, sem
drápu Loðvík sextánda, og ráku Karl tíunda og Loðvík Fil-
ippus í útlegð.
*) Lanfrey hefir nýlegaritað æfi Napóleons lsta eptir þeim hréf-
um hans er Nap. 3. hefirlátið gefa út, og vill þar í rýra and-
legt ágæti Napóleons á allar lundir með því að leiða í ljós
hvernig allt liafi hjálpað til að koma honum upp og hversu
ófyrirleitinn hann hafi verið og ekkert iátið sér fyrir hrjósti
brenna, og einmitt af þessu hefir mikill gustur verið gerður af
bókinni. En það er auðséð að höfundur hennar hefir ekkert
vit á því hvað það er að vera ingenium, heldur er einn af hinum
hversdagslegu rnaterialist,um sem nú þjóta upp hvervetna eins
og mý á mykjuskán og ekkert hafa til að bera nema kjaptinn.