Gefn - 01.01.1871, Qupperneq 41
41
samkvæmt, þá hefði það aldrei átt að fara að tala um stöðu
Islands »í ríkinu«, heldur hefði það átt að heimta að talað
væri um stöðu Islands fyrir utan ríkið; þvi hitt er
mótsögn sjálfs sín (contradictio in adjecto) eptir skoðan allra
enna þjóðkjörnu þíngmanna; en með aðferð sinni hefirþíngið
einmitt haldið fram vorri skoðan á málinu. |>að er annars
ekkert nýtt, að Island sé óaðskiljanlegur hluti Danaveldis
með sérstökum landsréttindum, því eins og Island alltaf
hefir verið »útland« (— það heitir á Keykjavikurskóla-máli
og alþíngis-máli »hjálaud«, á dönsku »Biland« og á þýsku
»Beiland« —), eins erum vér alltaf öðru hvoru minntir á
vort sérstaklega ástand, að minnsta kosti þegar einkaleyfi
eru gefin sem gilda um allt ríkið nema »Island, Færeyjar
og Grænland« — Grænland verður alltaf að vera með.
Vér álítum, að vort fullkomið frelsi liggi í þeim orðum,
að Island hafi sín sérstakleg landsréttindi. petta hefir alltaf
verið viðurkennt í stjórninni, ad minnsta kosti frá því farið
var að skoða land vort á pólitiskari hátt en var um alda-
mótin og þar á undan; það var líka beinlínis viðurkeunt af
stjórninni 1869, bæði með 4ðu grein í enu konúnglega frum-
varpi um stöðu Islands í ríkinu, og eins með allri stjóruar-
skránni um »hin sérstaklegu« málefni Islands, þó forsetinn
ómögulega gæti fundið að stjórnin skoðaði Islaud sem land
með sérstaklegum landsréttindum (Alþ. t. I. bls. 674). það
má með sauni segja sem sagt hefir verið, að »frelsismenn«
vorir sé eins og uglan, sem stóð á því að túnglið væri
bjartara en sólin, þegar þeir eru alltaf að tögla á því
að vér séum svo sem réttlausir þrælar fyrir Dönum, og
hræða landa sína með allskonar forynjum og öllu því sem
þeim sjálfum finnst óttalegast og sem hvergi á sér stað
nema í þeirra eigin heila. Á meðal þessara skrímsla er
»innlimanin« einna hroðalegust; og á móti henni setja þeir
það sælu-ástand sem þeir kalla »Personal-Union«. f>etta
ástand eða ríkis-samband segja þeir að hafi átt sér stað
frá því Island sameinaðist Noregi —• vér skulum hér samt