Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Page 23

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Page 23
23 safni: 60, 964, 976, 980, 1082 og 1110; ennfremur eru þar tvær um vinduteininn: 93 og 952, tvær um skeiðina: 644 og 1088, ein um riflnn: 851. 4. Fullkomnari en allar þessar forsagnir er þó eftirfarandi lýs- ing, sem að líkindum hefir verið útveguð safninu að undirlagi Jóns Arnasonar. Ovíst hvaða ár hún er skrifuð, en líklega hefir það ver- ið um 1870. »Lýsing á að festa upp í íslenzka vefstólnum. Fyrst er kvarðinn settur í lokuþollsgatið hægra megin; svo er bundin varptáin, sem er höfð margföld og rennilega samsnúin úr toga úr ullarkömbum; er miðjan á henni bundin um kvarðann, og hleinina þar sem hann er settur í hana. Annar endinn af henni er rakinn í hönk, en hinum endanum ofið yfir um kvarðann. Nú er vefurinn rakinn af tveim hnyklum í senn, og upptaksendinn bundinn yfir um báðar varptáarnar og kvarðann; síðan er rakinn vefurinn eins langur og til er ætlað á vefstólnum, (sem sjá má á götunum á hleinunum). Svo kemur maður með þessa 2 þræði aftur að kvarð- anum, og þeim brugðið yfir kvarðann, og þeim endanum á varp- tánni, sem rakinn er í hönk, ofið yfir um þræðina um leið og þeim er brugðið yfir kvarðann. Síðan gengur þetta verk á sama hátt þar til hálfbúin er breiddin, þá er slangan tekin fram af hælunum í efri endann og band sett í lykkjuna og skilið. Síðan er slangan klofin aftur úr öllu og svo fitjaður hvor helmingurinn (eins og siður er enn með slöngur) að kvarðanum. Svo er aftur byrjað á sömu leið og haldið áfram að rekja með sama móti og fyr er sagt, hinn helming- inn af slöngunni, sem fitjaður er á sama hátt og áður. Svo er tek- ið um báða endana á varptánni, sem ofnir eru um kvarðann og þræðina, og leyst svo miðjan á varptánni, sem fyrst var bundin um hleinina og kvarðann, og bundinn lykkjuhnútur á, og annar lykkju- hnútur er bundinn á endann á varptánni. Svo er hæll settur í hvora hlein í næsta gat við hleinakrókinn. Þar á er varptánni smeygt og síðan er jafnaður vefurinn á varptánni, eftir því sem varpið á að vera í vaðmálinu; svo er varptáin bundin upp við rifinn með því millibili sem vefurinn er breiður. Nú er margfaldur þráður, sem heitir rifþráður, bundinn um rif- inn til vinstri handar, þar sem varptáin er bundin á endanum. Á þræðinum er lykkja, í hana dregið band, sem þrætt er á nál, að því búnu er þessi þráður dreginn gegnum götin á rifnum og svo endan- um bundið um rifinn hægra megin. Siðan eru látnir lokuþollar í hleinarinnar neðstu göt, og skilfjölin í þá. Það sem að manni snýr af slöngunni er látið fyrir framan skilfjölina og slöngunni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.