Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 40
40
6237 6/2
6238 —
6239 —
6240
með þunnri gyllingu, sem nú er að mestu leyti farin af.
Lagið og verkið alt er í rómönskum stíl og virðist
vera islenzkt, varla yngra en frá 12. öld. Skálin er
nær hálfkúlumynduð, 8 cm. að þverm.; dýpt 3,7 cm.
Utan á henni eru grafnir 4 hringar og stendur engill
innan í hverjum hring; uppi við barminn er letrað
umhverfis með rómönskum upphafsstöfum: -f- SANG-
VINIS : INFOROMA i VINVM l ETVNDA :. og"5smá-
blóm að auki til útfyllingar. Hnúðurinn er flatkúlu-
myndaður, þverm. 3,7 cm., með gagnskornn verki, blöð-
um og böndum; milli hans og skálarinnar er stuttur
leggur (hólkur) og er grafið á hann með sama letri og
er á skálinni: DROTENS; fyrir neðan hnúðinn er
annar leggur álíka, en hann er síðari tíma verk og er
sléttur; á þeim sem þar hefir verið i fyrstu hefir senni-
lega staðið B L 0 D. Stéttin er kringlótt, 7,7 cm. að
þverm. neðst, mjókkar uppeftir, í boga inn á við; á
henni eru grafnir bogar og súlur og merki guðspjalla-
mannanna á milli þeirra; stéttin er bætt, og skálin sömu-
leiðis, á síðari timum. Hæðin er alls 11,5 cm. — Pat-
ina sú er fylgdi kaleik þessum var frá síðari öldum, slétt
og einföld (þverm. 10 cm.). Frá Ási í Holtum.
Hökull úr gulu, rósofnu silkidamaski, fóðraður með
hvítu lérefti og bryddur með bláu silki; hvitur, tiglótt-
ur silkikross á baki. Kræktur á vinstri öxl. Bakhlut-
inn er að lengd 95 cm., br. 72 cm., en framhlutinn er
aðeins 65 cm. að lengd og 40—51 cm að breidd.
Altarisdukur úr röndóttri einskeftu úr ull og baðmull,
með saumuðum bekkjum til endauna og að framan, og
8ilkikögri við brúnir; st. 101X53 cm.
Altarisklœði úr rósþryktu sirsi, annarsvegar; hinsvegar
er og sirs með þyktri engilsmynd í miðju, blómum um-
hverfis og bekk fram með jöðrunum; efst þeim megin
er hvítleitur borði, samskonar og sá sem er í krossin-
um á höklinum nr. 6237. St. 100X84 cm.
Þessir þrír síðasttöldu gripir eru frá Kálfholti; hafa
ef til vill verið áður í Ási. Virðast allir vera frá 18.
öld.
Jón Borgfirðingur, Reykjavík: Eitt Lijtið Stafrofs KVEB.
Fyrer B0rn og Vngmenne. Prentað I SKALHollte |
ANNO 1695. Kverið er heilt 12 blöð tvöföld (limd sam-
an), í 12 bl. broti: 2., 6., 16., 19., 20., 21. og 22. bls.