Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Side 38
Skýrsla
nm viðbót við Þjóðmenjasafnið árið 1912.
[Tölumerki hlutanna, dagsetning við móttöku þeirra og nöfn þeirra manna, er
þá hafa gefið suma, eru prentuð framan við].
Þjoðmenningarsafnið.
6227. uh Skúfhólkur úr silfri, algyltur, raeð gröfnum blómum og
útrensli; 1. 5,6 cm., þverm. 1,6 cm., jafngildur allur.
Smíðaður af Benedikt Ásgrímssyni gullsmið fyrir nær
40 árum.
6228. 15/i Altaristafla smíðuð úr furu, máluð í fyrstu með bláum
lit, en á síðari tímum hefir hún verið máluð með bleik-
rauðum lit. Taflan skiftist í 3 aðalhluti: Undirtöflu
(predella), stærð 130X19 cm.; á hana erletrað: Synged
yndislega i yðar Hiortum fyrer Drottne. Coloss: 3. v: 16.;
miðtöflu, stærð 100,5X101,5 (hæð) cm. og súlur beggja
vegna við hana; undirtaflan og súlur þessar eru með
sínum upprunalegu litum, bláar með gyltum listum og
súlnahausum. Á miðtöflunni er máluð kvöldmáltíðar-
mynd, ártalið, er taflan var gerð, 1783, neðan undir, en
engilsmynd uppi yflr. Miðtaflan er með vængjum og eru
málaðar á þá myndir guðspjallamannanna. Uppi yfir
miðtöflunni er burst, br. 133 cm. og hæð 60,5 cm., mjókk-
ar uppeftir; útskornir listar, — blöð og ávextir —,
fram með brúnunum; á miðja burstina eru málaðir 2
dómadagsenglar og svífa þeir með hvítt band á milli
sín, sem á er letrað: Heilagur Heilagr Heilagr ertu
Drotten. Fyrir neðan þá er annað band, og stendur á
því: Hefur latið giora Arne pr. Th:Son (þ. e. séra Árni
Þórarinsson, er síðar var byskup á Hólum). Uppi yfir
burstinni virðist hafa verið lítill kross. Altaristafla þessi
er vel smíðuð og útskurður góður, en hinar máluðu
myndir eru engin listaverk. Hún er án efa gjörð af
Ámunda smið Jónssyni (sbr. nr. 6163 og 6181).