Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Page 46
46
6258. 2/
6259. -
6260. -
6261. -
6262. -
6263. 8,
6264. -
jöklum og grænum dalshlíðum*. A síðari tímum hefir
verið aukið ofan við tjaldið og málað nokkuð ofan við
það. Tjaldið nefnist »Heiðarbrúnin*. Br. 3,70, h. 2,40 m.
'4 Bdktjald leiksviðs 3. þáttar af »Utilegumönnunum«;
»leiksviðið er dalverpi lukt jöklum; næst áhorfendun-
um eru klettar beggja vegna, og sér í hellismunna
vinstra megin«. Á síðari tímum hafði verið aukið ofan
við tjaldið og málað á með of sterkum litum; nú hefir
sá viðauki verið tekinn af og settur annar með hæfi-
legri litum og tjaldið sett í umgjörð; innanraál h, 2,30
+ 0,83 (viðbótin), br. 3,62 m. Tjaldið hefir verið nefnt
»Dalur«.
Báktjald leiksviðs í 4. atriði 3. þáttar af »Útilegumönn-
unum«, »útilegumannahellirinn innanverður«. Br. 3,20,
h. 2,44 m.
Baktjald leiksviðs 4. þáttar af »Útilegumönnunum«;
»grasafjall, klettar beggja vegna, heiðaöldur og jöklar
andspænis«. Nefnt »Grasafjallið«. — Farið eins með
þetta tjald og nr. 6258 og innanmál umgjarðarinnar
hið sama og þeirrar, sem það tjald er í.
Baktjald leiksviðs 5. þáttar (og líklega einnig 2. þáttar)
af »Útilegumönnunum, stofugafl með glugga, — »stofa í
Dal« (5. þ., og »stofa hjá Lárenzíus, 2. þ.). Br. 3,70,
h. 2,50 m.
Baktjald leiksviðs i 11. atrlði 5. þáttar af »Útilegu-
mönnunum«, »þinghúsið«. Br. 3,80, h. 2,70 m.
Öll þessi leiktjöld eru máluð af Sigurði málara
Guðmundssyni og hafa jafnan verið notuð er »Útilegu-
mennirnir« (eða »Skugga-Sveinn«) hafa verið sýndir
hér. Fyrir tilmæli forstöðumanns Þjóðmenjasafnsins
hafa þau nú af formanni Leikfélags Reykjavíkur verið
afhent safninu til varðveizlu.
It Dr. Jón Þorkelsson skjalavörður, Reykjavík: Veski
með látúnsspenslum, það er úr ljósleitu skinni með
eikarspjöldum innan í; nokkur blöð skrifuð í. Stærð
14,5 X 9 cm.
- Sami: Veski úr þryktu skinni utan af bók í 2 bl. broti;
2 smáhylki eru innan i og eru á öðru þeirra annars
vegar upphafsstafir eigandans (S. C. S.) skrautlega
dregnir, en hins vegar 2 gamlar þryktar myndir og
iitaðar, önnur af konungi, hin af presti. Stærð veskis-
ins er 19 X 10 cm.