Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Qupperneq 53
53
hálsraál og í krossi á baki; fóðrið úr Ijósbrúnu lérefti;
krækt á vinstri öxl. Getið fyrst í visitatiu 1769 (sbr.
1780), en virðist miklu eldri.
6290. 18/5 Hökull úr bómullarvefnaði með silkirósum, fóðraður með
lérefti, heíir allur verið litaður dökkblár og síðan settur
á hann kross úr íslenzkum þráðarkniplingum, gulum og
rauðum. — Ef til vill sá hinn sami og nefndur er í
visitatiugjörðinni 1780 »af bláleitu Sylke og tvinnatóje,
fódradur med bláu lérefte« og er þess hökuls getið í
eldri visitatium, frá fyrri hluta aldarinnar.
6291. — Þjónustukaleikur með patínu tilheyrandi, bæði úr silfri,
íslenzk, með stimplinum I-H (eða H'I); kaleikurinn
er allur kringlóttur og með hnúð á legg; hæð 7 cm.,
þverm. skálar 4,6 cm., dýpt 2,2 cm., þverm. hnúðs 2
cm., stéttar 5 cm.; patinan er 5,2 cm. að þvermáli.
Þyktin yfirleitt 0,5 mm. Áhöld þessi eru í tréhylki,
rendu úr islenzku birki og látúnsbúnu, hæð 9,8 cm.,
þverm. um 6,3 mest.
6292. — Grafsknftarspjald úr eik, svartmálað, í útskorinni og
gyltri umgerð úr furu, ferhyrnt. 95X67,5 cm. að stærð.
Grafskriftin er með gyltu skrifletri, nema 4. línan, og
er svo: Canclave | Viri | Admodum Reverendi, Claris-
simi Piissimi | DNI OLAUI PETRÆI | Pastoris qvon-
dam Ecclesiarum Alftnesensium | Monarchiæq(ue) Kial-
nesensium Præpositi I ut | Dignissimi ita et Vigilantis-
simi | Nati Anno æræ Christianæ 1661 23. Decembr:
| In Boreali plaga Islandiæ | Denati 6. Non: Julii.
Anni 1719. | In Canjugio 26. Annos, | Qvatuor liber-
orum Patris | Sacei'dotis 27. Annorum. | Præpositi autem
decem, | Vixit Pie, obiit Placide. — Síðan koma tvær
ritningargreinar: Esa: cap: 26. vers: 20. og Apocal: cap:
3. Vers: 10. et 11. Sjá um Ólaf prófast Árb. 1906, bls. 48-49.
6293. — Grafskriftarspjald úr furu, málað gult, í skrautlegri um-
gjörð úr sama efni, og er hún að sumu leyti gylt, en
að sumu leyti máluð hvít, ferhyrnd, hæð 152 cm., br.
93 cm. Grafskriftin er með svörtu letri gotnesku, nema
nafnið, sem er með rómönskum upphafsstöfum; hún er
í bundnu máli, 5 erindum og eru 2 hin fyrstu svo:
»Geimdu jord Gladri upprisu Látinn lík-ham hérLagd-
ann nidur Gofugmennis GUDMUNDS THORDSSONAR
Sá hondlun stýrd’ í Hafnarfyrdi. Sleit hann burt daudi
frá dygdugri konu Og úngum sjo Elskudum bornum,