Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Page 56
56
6302.
6303.
6304.
6305.
6306
Bjarnadóttir landlæknis Pálssonar; fekk hún samfelluna
að gjöf af manni sínum Vigfúsi sýslumanni Þórarins-
syni (Thorarensen) á Hlíðarenda, en gaf hana eftir sig
dóttur sinni Rannveigu; Margrét dóttir Rannveigar,
Sveinbjarnardóttir, fekk hana eftir móður sína og seldi
safninu.
29/5 Tirikanna með handarhaldi og loki, hæð 17,7 cm. auk
typpis upp úr lokinu, sívöl og jafngild, þverm. 9,5 cm.,
meiri um barma og stétt. A lokinu er eftirlíking af
minnispcningi með myndum af stofnöndum »heilaga
sambandsins«, Franz II, Alexander I og Friðr. Vilhj.
IV. Kannan er því frá því ári er það var myndað,
1815, eða næstu árum á eftir. Hún er með grefti að
utan og er nafndráttur Friðriks VI með kórónu yfir
framan á. Innan á botninum er stimpill steyparans
mjög óljós, S M L og 3 turnar fyrir neðan. Neðan á
botninn er grafið nafnið Jón; mun það hafa gert fyr-
verandi eigandi könnunar, Jón söðlasmiður frá Hlíðar-
endakoti; fylgir sú sögn, að Sæmundur í Eyvindarholti
hafi gefið Jóni, er sagður var launsonur hans, könnu
þessa fulla af silfurpeningum.
4/6 Jón Borgfirðingur, Reykjavík (d. 20. okt. 1912) Gler-
augu með silfurumgerð og -spöngum; er innan á aðra
spöngina grafið B Th, en hina ártalið 1811. Eru líkur
til að það séu upphafsstafir Bjarna Thorarensen þá
vísi-assessors, síðar amtmanns. Gleraugun eru stækk-
andi.
5/6 Eyrnalokkar úr þunnu gulli, smeltir með bláum og hvít-
um glerungi, einkar fallega lagaðir og vel gerðir, hvor
í tvennu lagi; lengdin alls 5,8 cm. — Ofan úr Borgar-
firði. Utlendir að uppruna.
6/e Signet úr siifri, hefir verið gylt og er það enn að nokkru
leyti, gert til að hengja við festi; stéttin sporöskju-
mynduð, 1. 2,9 cm., br. 2,3 cm., hæð 3,7 cm. Á stétt-
ina er grafinn skjöldur með rósum í skelstíl umhverfis
og stjörnu yfir; á skjöldinn er grafið J og 3 þúfur (?)
fyrir neðan. Laglegt verk, útlent. Signet þetta átti
síðast Jón Konráðsson í Mjóafirði.
la/8 Beltispör úr silfri, gylt, mjög gömul að sjá, með hinu
forna loftverki i gotneskum stíl; í miðju er lítill stokk-
ur, 2,9 cm. að lengd og 2,7 cm. að breidd, og er lengri