Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 57
b7
stokkum krækt við báða enda hans, eru þeir 5,6 cm.
að lengd og 2,2 cm. að breidd. Virðast íslenzk.
6307 — Hornaþjöl úr járni, með furuskafti og er látúnshólkur
á ; 1. blaðanna 14 cm. og skaftsins 8,8 cm. Blöðin eru
3, hvert við annars hlið og þó 0,6 cm. breið bil á milli;
fest saman við endana; 2 þeirra eru þykk (0,4 cm.), en
eitt þunt (1,5 mm.). Tannirnar líkar sagartönnum. ís-
lenzk að öllu leyti og virðist all gömul og mun nú
mjög fáséð verkfæri.
6308 17/e AUarístafla úr furu með vængjum, máluð kvöldmáltíðar-
mynd á sjáifa töfluna, mjög lík þeirri mynd, að þvi er
fyrirkomulagið snertir, sem er á altaristöfiunni nr. 4406,
úr Mela-kirkju, þó þannig að þær persónur, sem á henni
eru vinstra megin, eru á þessari hægra megin, eins og
á spegilmynd væri. Töflurnar eru þó alls ekki málað-
ar af sama málara, en sama frummynd liggur til grund-
vallar fyrir báðum kvöldmáltíðarmyndunum. Miðtaflan
er að hæð 93,5 cm., en að breidd 81 cm. Vængirnir
eru með máluðum myndum á spjöldunum og rauðmál-
uðum umgjörðum. Utan á þeim eru Kristur með ríkis-
epli og Jóhannes postuli með lykil og annar postuli,
sem eftir einkennishlutnum að dæma, er Matthías, —
ef til vill Mattheus — því að hann heldur á exi.
Myndirnar eru fremur illa málaðar, engin listaverk,
enda eru það fæstar af altaristöflum þeim frá 17. og 18.
öld, sem eru í kirkjum hér á landi; þær eru eftir
(danska) handiðnarmenn, en ekki listmálara.
6309 a c — Ljósarmar (ljósaliljur) 3 steyptir úr kopar, allir eins, í
endurlifnunarstíl, S-myndaðir, með ormshaus á miðjum
legg en kvennhöfði á efri enda, innan i efra bug, skál-
arnar rendar og eru ekki allar eins, þverm. 11 cm.,
ljósapípurnar ekki heldur eins, — samtíningur. Breiddin,
frá króknum og út í pípuna er um 17—18 cm. Voru
fjórar til fyrir skömmu; segir svo um þær í visitatiu
Steingríms byskups Jónssonar 1831: »ljósakróna, sem
áður var til (nefnd síðast í vísit. 1783) með 5 örmum,
pípur og skálar, er úrgengin, einasta eru til af henni
4 armar, pípur og skálar af messing, settir í járnhöld
beggja megin kórdyra«.
6310 — Vínflaska úr glæju gleri, ferstrend, 21,7X18,2 cm. að
þverm., hæð 28,2 cm.; máðar blómmyndir í hliðarnar,
Trétappi látúnsbúinn í. Sbr. nr. 4890.
8