Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 67
67
6357. 28/8
6358 s,/8
6359 6/9
6360 a-b —
6361 7/9
6362 —
6363. 12/g
6364. a-c —
strikum og smáhringum svo sem títt var; virðast hring-
arnir gerðir með einskonar miðbroddsbor. — Sbr. 0.
Rygh, Norske Oldsager nr. 447; S. Miiller, Danmarks
Oldsager II. nr. 620; 0. Montelius, Sv. Fornsaker nr. 526;
H. Hildebrand, Sveriges medeltid I. 2, bls. 565—6. —
Áður eru komnar til safnsins 3 heilar greiður og nokk-
ur brot, sbr. nr. 2582, 3331, 3954 o. fl.
Kvenbelti úr svörtu fluéli, skrautlega baldýrað með
gyllivír, með spennum úr silfri, gröfnum og drifnum,
settum gylturn doppum, steyptum; harla gamallegt verk.
L. alls um 82 cm; stokkarnir 7,6X2,9 cm.; þvermál
skjaldarins 4,7 cm.
Björn Árnason gullsmiður í Reykjavík • SJcúfhólkur úr
silfri, frá fyrri hluta 19. aldar, lengd 3,6 cm., þverm.
I, 5 cm. Laglega graflnn.
Upphlutur úr svörtu klæði, fóðraður rósóttu sirsi, brydd-
ur með rauðu flúneli. Að framan eru fluélsborðar með
baldýringu, en millur eru af teknar. Eftir Sigríði Jóns-
dóttur frá Stapadal í Arnarfirði.
Sýnishorn 2 af hekli með sjaldséðum uppdrætti, úr hvítu
garni; stærð 19X5,3 cm. og 15,5X3 cm.; bæði nýgerð.
Hrosshárssnœlda úr furu með járnkrók í; hausinn flatur
að neðan og kúptur að ofan með smáskorum í röndina;
þverm. 10,5, þ. 2,5 cm. Halinn óverulega útskorinn
ofantil; 1. 41 cm., gildl. um 1,7 cm. —Frá Raaðhúsum
í Eyjaflrði.
Brauðmót úr furu kringlótt, þverm. um 26 cm., þykt
2,2 cm.; slétt annarsvegar, en með útskurði hinsvegar:
í miðju eru upphafsstafir konu þeirrar er fyrst heflr
átt það, IJ D, umhverfis þá er bekkur með rósastreng
og yzt leturbekkur með latínuletursupphafsstöfum, svo-
feld áletrun: FOR • SION • INN • FRAMM • REID • IR ■
BRA: (þ. e. Forsioninn frammreidir bra[udid]). Sprung-
ið, spengt og sviðið. — Frá Espihóli í Eyjafirði.
Séra Jes Gíslason, Vestmannaeyjum: Fitusteinsbrot blá-
grátt að lit með hrímskóf annarsvegar; sjást á því för
eftir járn það er notað hefir verið við smíði áhaldsins,
sem þetta brot er af, en af brotinu verður ekki séð af
hverskonar áhaldi það er. Þyktin er 0,9—1,4 cm,, br.
og 1. 6—7 cm. Liklega norskt.
Sami: Tennur úr svíni, vígtönn stór og jaxl (?), og
úr hrossi, framtönn úr neðra skolti.
9*