Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Síða 68
68
6365. a-c 12/9
6366. 14/9
6367. —
6368. —
6369. —
6370. —
6371. —
6372. —
Sami: Naglabrot 3 úr járni, af haustórum reksaumi.
— Síðast taldir gripir (nr. 6363—65) eru fundnir í hinu
uppblásna svæði undir Hánni á Heimaey, þar sem ýms-
ir líkir smámunir hafa fundist áður og margir komið
til safnsins; munu þeir flestir eða allir vera frá mið-
öldunum.
Byssa úr járni með fallbyssulagi mjög lítil, 1. 28 cm.,
gildleiki 3,7—6 cm., vídd hlaupsins 1,8 cm., lengd aft-
ur að púðurgati 22 cm. Ut frá miðju ganga typpi til
beggja hliða og hvílir byssan á þeim í tréstykki brún
máluðu, 46 cm. löngu, 11 cm. br. og 15 cm. háu í ann-
an enda, en fleygmynduðu í afturenda; þvertré er fest
neðan á það, 1. 33 cm., br. 7,5 cm., þ. 3 cm., hálf
kringlóttir endar. Byssa þessi mun ætluð til að skjóta
með merkisskot á skipum, en sagt er að Kohl sýslu-
maður í Vesmannaeyjum haíi notað 3 slíkar byssur á
Skansinum þar við heræfingar þær er hann hafði með
eyjarskeggjum. Var nú geymd í verzlunarhúsum Bryde
kaupmanns og afhent af verzlunarstjóranum.
Verzlun Bryde í Vestmannaeyjum: Lyft mikil úr eik,
hæð 82 cm., br. 29 cm., þ. 14 cm., ganga broddar 2
niður úr henni, en járn er innan í með tönnum á anu-
ars vegar og má vinda því upp með hjóli, sem er inn-
an í lyftinni og grípur í tennurnar; stendur ás hjólsins
út úr lyftinni og hefir verið sett á hann lyftistöngin,
sem nú er glötuð; er mikið og vandað smíði á áhaldi
þessu og mun það vera frá 18. öld.
Sami: Vogarstöng úr járni af skálavog, mjög stór og
sterk, lengd 180 cm.; mundangið brotið af, hefir verið
um 30 cm. að lengd. Einkar vandað járnsmíði, líklega
danskt. Ártalið 1820 er letrað á.
Sami: Vogarstöng úr járni, litlu minni, lengd 146 cm.,
mundangið 23 cm. Annars vegar greinar, hins vegar
ártalið 1777.
Sami: Vogarstöng úr járni, lengd 128 cm.; mundangið
af. Annarsvegar er letrað MS — 1804. Einkar vandað
og skrautlegt smíði. Máluð með rauðum lit, líklega menju.
Vogarstöng úr járni, 120 cm. að lengd, mundangið 15,5
cm. Klofinn er brotinn. Áletrun I L M og árt. 1801
annars vegar, en hinsvegar aðeins 1801. — Stafirnir eru
líklega upphafsstafir járnsmiðsins.
Vogarstöng úr járni, 1. 94 cm., mundangið 24,5 cm. Að