Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 74
74
6403. 1#/11 Legill úr furu (rekaviði), um 27 cm. að þvermáli og 17
em. að hæð. Eyru á tvo vegu og 2 göt á efra botni
með trétöppum í. Ein trégjörð á hvorum enda. — Báðir
úr Rangárvallasýslu. Varla yngri en frá 18. öld. Sbr.
nr. 5089, sem er miklu minni og yngri. — I leglum
var fluttur drykkur á engjar o. s. frv. — 01 var í
eyrunum.
6404 a-b.— Jón Guðmundsson bóndi á Ægissíðu: a. MetasJcálar,
skdlavog, úr kopar með líkri gerð og nr. 3084 og 6314;
stöngin er 30,4 cm. að lengd og má leggja hana sanian
á 2 stöðum. Skálarnar hanga á hamptvinna; þær eru
2.7 cm. að þvermáli og 1,1 cm. að dýpt, 0,3—0,6 mm.
að þykt. Mundangið 8,3 cm. að lengd; er það sett í
gegnum miðju stangarinnar. Á klofanum beggja vegna
og á hnúðum, sem eru á stangarendunum, eru litlir
smáhringar með depli innan í, sem oft eru á fornum
hlutum, sbr. nr. 6356 og fl. Vog þessi er mjög fornleg;
virðist jafnvel ekkert mæla á móti því að hún og
sömul. nr. 3084 kunni að vera frá fornöld og munu þær
þó aldrei hafa legið i jörðu.
b. Metastokkur úr furu, fremur nýlegur, 1. 14,5 cm.,
br. 4,4 cm., þ. 2,7 cm., með renniloki og er skotið loku
fyrir breiðari enda þess. í hylkinu eru 4 met úr blýi,
ferhyrnd og er graflð á þau Va, 1, 2 og 3, er merkir
lóð, og vega þau 7VS. 16, 32‘/3 og 47 gr.
6405. — Sami: Skeið úr messing með kringlóttum blöðum á
báðum endum og eru þau bæði skemd mjög; skaftið er
um 8,5 cm. að lengd, sívalt, 2,5—4,5 mm. að gildleika.
Stærra blað er á gildari enda þess, um 4,8 cm. að þverm.
og er silfrað innan; upprunaleg lögun hins blaðsins
verður ekki ákveðin; breidd þess virðist hafa verið um
1.7 cm. Skeið þessi hefir máske verið meðalaskeið;
hún fanst í fornum öskuhaugi, um 3 álnir í jörðu, skamt
frá helli einum, sem nú er hruninn.
6406. ao/n Bjarni Stefánsson, Vatnsleysu: Tóbaksdósir, hollenzkar
úr látúni, ferstrendar, aflangar, bognar fyrir enda, 1.
17,5 cm., br. 4,8 cm.. þ. 3 cm. A lokið er grafin á
miðju mynd af Kristi er hann birtist Maríu Magdalenu
svo sem garðyrkjumaður, og á botn er grafln mynd af
honum á leið til Emaus með lærisveinunum tveim;
skýrandi áletranir hafa verið grafnar fyrir neðan, en
eru nú ill-læsilegar. Við báða enda á loki og botni eru