Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Qupperneq 76
76
6412. 10/ia
6413. —
6414. m/ii
6415. —
6416. —
6417. —
hlaut að verða til óþæginda, hefði það verið á. Lengd-
in á þessum nælum virðist hafa verið 11 cm., br. 7,5
cm., hæðin 3,6 cm. frá grunnfleti upp á miðhorn. —
Fundnar í uppblásnu svæði þar sem kallast Gamla-
Berjanes í Landeyjum.
Frú Kristín Guðmundsdóttir, Hvammstanga: Eirketill
stór og gamall, með flötum botni, hvelfdu loki með höldu
á. Hæð undir lok 18,5 cm., þvermál um bumbuna 31
cm. Haldan er flöt, um 2,6 cm. að breidd í miðju; á
henni er merki Kaupmannahafnar og virðist standa árt.
1791 undir turnunum. — Hetir verið hafður fyrir litun-
arketil upp á síðkastið.
Bjarni Björnsson, Neðra-Vatnshorni: Beizlisstöng úr járni,
mjög fornleg, ekki heil, vantar á efri enda, S-mynduð,
einföld að mestu leyti, skeytt saman neðan til, klofin
neðst, þar sem sigurnaglinn hefir leikið í gati. L. um
18.5 cm. nú. Mjög ryðbrunnin. Fundin í Borgarvirki.
Forstöðumaður safnsins: Steinn með bolla í, líklega
steinkola; hann er lábarinn hraunsteinn (grágrýti) mjög
holóttur. Hryggur er neðan á, svo að ekki geta harm-
arnir á bollunum verið láréttir nema steinninn sé skorð-
aður; hann er eigi vel kringlóttur, um 11,7 á annan
veginn, en 11 á hinn; hæðin er 6 cm., dýpt bollans
1,8 í miðju, þvermál um 6,5 cm. Fundinn á Lækjar-
götu í Reykjavík, heflr komið þar upp við gröft að
líkindum.
Steinn með bolla, skál í, líklega steinkola, lábarinn,
jafn að utan, fremur flatur, stendur nær óhallur, hæð
4.5 cm., nær kringlóttur, 12,5—14,5 cm. að þverm. Skál-
in fremur flöt í botninn, dýpt 1,4 cm., þverm. um barma
um 7 cm. Efnið grágrýti.
Steinn með skál annars vegar, líklega brot af steinkolu,
gerðri úr móleitu grágrýti, kringlóttur, þvermál um 11
cm., flatur að neðan, þykt (hæð) um 5,7 cm. Mjög
brotinn annars vegar, en vottar þó fyrir að þar hafl
verið skaft. Skálin hefir náð nær út á brún og verið
flöt í botn, þvermál um 8,5 cm., dýpt að eins um 0,8
cm. Skálin er svört að innan og út á barma. Þessi
hlutur og nr. 6415 hafa komið til safnsins fyrir löngu,
en eigi verið skráðir fyr meðal gripa þess.
Hringja úr bronzi með hinu forna hófhringjulagi, 1. 6,2,
br. 7,4 cm.; þornið með blaðlögun; utan á hringjunni