Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Qupperneq 84
Skýrsla
xim viðbót við Þjóðmenjasafnið árið 1913.
[Tölumerki hlutanna, dagsetning við móttöku þeirra og nöfn þeirra manna, er
þá hafa gefið suma, eru prentuð framan við].
Þjóðmenningarsafnið
6427. a-b 3/1 Kaleikur og patina, úr silfri bæði og samstæð, í siðgot-
neskum stíl; lítil, hæð kal. 15,1 cm., skálin að þverm.
efst 7,5 cm., dýpt 5 cm.; hefir verið gylt innan, er nú
rifin og bætt í botni; meðalkaflinn með kúlumynduðum
hnúð á miðju, þverm. 4,5 cm., hæð (þykt) 2,6 cm.,
grafnar tungur ofan og neðan; beggja vegna hnúðsins
eru sexstrendir leggir, jafn stórir, 1 cm. að hæð; stéttin
er með 6 tungum og er grafið krossmark á eina þeirra.
Tungurnar og fletirnir á leggjunum eru með einföldum
strikum, gröfnum, við brúnirnar. — Patinan er að þverm.
9,6 cm., barmur að breidd 1,8 cm., með gröfnu striki á
umhverfis yzt og inst og gröfnu krossmarki, líku og er
á stétt kaleiksins, en minna (1:1,9 cm.); botninn slétt-
ur og kringlóttur; hæð pat. 0,5 cm., efnisþykt 0,7—0,8
mm. — Á kal. og pat. eru 2 stimplar, MHsamandreg-
in, sem er smiðsstimpill Hans Petersen Murer, er var
gullsmiður í Kaupmannahöfn í byrjun 17. aldar; hinn
stimpillinn er ráðstofustimpill Kaupmannahafnar og er
ártalið 1623 undir turnunum þremur1). — Áhöld þessi
eru nú orðin beygluð og gölluð. Séra Sigurður Sivert-
sen á Útskálum kvað hafa notað þau fyrir þjónustu-
áhöld; — ef til vill hafa þau áður verið tilheyrandi
kirkjunni þar. Síðast átti þau séra Brynjólfur Gunn-
arsson á Stað í Grindavík og seldi ekkja hans þau
safninu.
*) Bernh. Olsen, De kjöhenh. Guldsmedes Mærker nr. 165 (sbr. nr. 164), og mynd
af r&ðstst á hls. 2.